149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:13]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vissi að hann myndi renna út á tíma þannig að ég geri honum þann greiða að veita honum andsvar svo hann geti útskýrt mál sitt enn betur.

Hv. þingmaður fór hér að einhverju leyti yfir áhyggjur sínar. En ég verð samt að viðurkenna að ég skil ekki enn nákvæmlega í hverju áhyggjurnar felast. Er það óttinn við að þessi þingsályktunartillaga og frumvörpin sem fylgja í kjölfarið brjóti með einhverjum hætti í bága við stjórnarskrána? Er það óttinn? Ef svo er höfum við þegar fjölmörg álit sem segja að það gerist ekki. En ég ítreka að auðvitað eigum við að nota þinglega meðferð til að fara yfir það betur.

Eða er hv. þingmaður með einhverjum hætti að tjá ótta sinn um eitthvað sem gæti mögulega gerst í framtíðinni varðandi sæstreng þrátt fyrir að hér sé kirfilega tekið fyrir það við umfjöllun á þingsályktunartillögunni að sæstrengur sé inni í myndinni? ACER, evrópska eftirlitsstofnunin, hefur þar af leiðandi ekkert að segja um hvernig málinu verður háttað, hún ber fyrst og fremst ábyrgð hvað varðar mannvirkin sem þegar eru til staðar.

Þannig að ég spyr, virðulegur forseti: Óttast hv. þingmaður að hér geti komið einhverjir vondir útlendingar, lagt sæstreng, tengt sig við raforkuframleiðslu á Íslandi og sogað frá okkur orku? Er það raunverulega ótti þingmannsins?