ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Fyrst vil ég nefna að ég fagna því að loksins skuli nú þingmaður frá Framsóknarflokknum að koma í ræðustól og ræða þetta mál. (Gripið fram í: En Willum?) Jú, að vísu var Willum Þór Þórsson hér, ég var reyndar ekki viðstaddur í þingsalnum þá. Þá eru þeir komnir tveir og það er mikið fagnaðarefni, sérstaklega í ljósi þess að það er mikil andstaða við þetta mál innan Framsóknarflokksins og grasrótar Framsóknarflokksins. Einn forsvarsmaður hins ágæta hóps sem kallar sig Orkan okkar, sem eru grasrótarsamtök sem leggjast gegn þessari innleiðingu, er fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, Frosti Sigurjónsson. Síðan er fróðlegt að skoða aðeins ályktun flokksþings Framsóknarflokksins frá því í febrúar 2018, en þar segir:
„Framsóknarflokkurinn stendur vörð um fullveldi Íslands í orkumálum og hafnar því að orkulöggjöf Evrópusambandsins verði tekin inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.“
Þetta er frá flokksþinginu í febrúar 2018. Ég get ekki betur séð en að þetta sé algjörlega á skjön við það sem hv. þingmaður sagði í sinni ræðu. Þess vegna er fróðlegt að fá það fram hjá hv. þingmanni: Verður það niðurstaðan að þingflokkur Framsóknarmanna muni leggjast gegn þessari ályktun flokksþingsins og þar með grasrót Framsóknarflokksins í þessu stóra máli?