ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þingmaðurinn nefndi hér undanþágur. Það kom athyglisverð yfirlýsing frá norska utanríkisráðherranum í Stórþinginu fyrir skömmu þar sem hann segir að engar nýjar undanþágur hafi verið samþykktar handa Íslendingum. Síðan segir hann: Slíkir heimalagaðir fyrirvarar eru verri en engir. Þá á hann væntanlega við fyrirvarann sem á að lögfesta í raforkulögum um að hér verði ekki lagður sæstrengur nema með samþykki Alþingis.
Þetta er athyglisvert og það væri gott að fá fram það frá hv. þingmanni hvernig hann lítur á þessa yfirlýsingu norska utanríkisráðherrans. Það verður að taka hana alvarlega vegna þess að Norðmenn eru mjög stór aðili að Evrópska efnahagssvæðinu og halda eiginlega uppi þessu samstarfi sem við erum þátttakendur í einnig. Veldur þetta ekki áhyggjum, hv. þingmaður, að svo mikill þungavigtarmaður komi fram með yfirlýsingu af þessu tagi?