ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Mig langar, með leyfi forseta, að byrja á því að lesa lítið brot úr ályktun sem hljóðar svona, með leyfi forseta:
„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“
Mig langar að lesa þetta aftur:
„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“
Þetta er landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins frá því í mars í fyrra 2018, en er núna gleymd.
Hins vegar segir í nýlegri ályktun frá flokksráðsfundi Miðflokksins frá því 30. mars sl., með leyfi forseta:
„Miðflokkurinn stendur vörð um fullveldi, sjálfstæði og auðlindir þjóðarinnar. Flokkurinn vill treysta forræði þjóðarinnar yfir auðlindum sínum og mun leggjast gegn samþykkt þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Flokkurinn samþykkir hvorki afsal á fullveldi Íslands yfir orkuauðlindinni né fyrirsjáanlega hækkun á raforkuverði hér á landi.“
Svo mörg voru þau orð, herra forseti.
En það er nefnilega mergurinn málsins að Miðflokkurinn hefur tekið að sér að standa vörð um fullveldi, sjálfstæði og auðlindir þjóðarinnar. Hann hefur tekið að sér að standa vörð um stjórnarskrána. Hann hefur tekið að sér að standa vörð um áframhaldandi hagsæld á Íslandi sem nýtast mun komandi kynslóðum. Og það vill nú svo til að í varðstöðu okkar sem við þingmenn flokksins höfum reynt að koma hér á framfæri mjög gaumgæfilega undanfarna tvo daga, eru einu svörin sem við fáum ekki um málefnin, heldur um flokkinn sjálfan. Ég hef ekkert á móti því að andstæðingar okkar auglýsi upp okkar ágæta flokk. Mér þykir það mjög gott. En ég skil ekki af hverju menn taka ekki þátt í málefnalegri umræðu, sem margir hverjir hafa ekki gert.
Hér var í dag ágætur fulltrúi Samfylkingarinnar og formaður þess flokks. Hann sagði í ræðu sinni, með leyfi forseta, eitthvað á þá leið að það væri rétt og skylt að fara að ráðum færustu sérfræðinga.
Það varð til þess að ég las honum stuttan kafla úr greinargerð tveggja okkar færustu sérfræðinga, en þá hentaði hún ekki. Maður á ekki að lesa upp einhverja búta sem ekki henta og bara eftir þennan en ekki hinn.
Ég verð að viðurkenna að þar sem þetta var greinargerð eftir tvo af okkar færustu sérfræðingum í Evrópurétti, þar á meðal prófessor sem nú er heiðursprófessor, hélt ég að óhætt væri að vitna til þeirra. En formaður Samfylkingarinnar kallaði þetta lýðskrum og þvælu, ef ég man rétt. Ég sakna þess mjög að menn skuli ekki bara mæta okkur hér á málefnagrunni og fara vel yfir málefnin frekar en að hafa uppi svona orðræðu. Ég veit ekki hvort ég á að auglýsa varaformann Viðreisnar og málflutning hans frá því í dag. Ég held að ég geri honum mestan greiða með því að gera það ekki. En þar kom einmitt fram þessi sára málefnafátækt sem er ríkjandi og þessi einkennilega rörsýn sem Viðreisn býr yfir þar sem Evrópusambandsmerkið og evrumerkið eru við endann á göngunum og menn tala mikið um hluti eins og að Miðflokkurinn vilji reisa múra í kringum Ísland. Það er ekkert fjær okkur Miðflokksmönnum en að gera það. Við viljum hins vegar „hafa heiminn allan undir“, eins og Einar Ben. sagði einhvers staðar. Við ætlum ekkert að fara að velja einhverja fallandi heimsálfu og hengja okkur um hálsinn á henni til þess að taka þátt í frekari niðurlægingu sem blasir við á þeim slóðum. Við ætlum að eiga góð samskipti. Við ætlum að eiga góð viðskipti og samskipti við Asíu, sem er mest vaxandi markaður heimsins. Við ætlum að beina sjónum okkar til Vesturheims, til Ameríku, þar sem uppgangur er þokkalega góður. Þannig að allt tal um að við séum einhverjir einangrunarsinnar, Miðflokksmenn, er í besta falli mjög mikill misskilningur.
Ég ætla ekki að fara að tala niður til bænda, en við erum sem sagt ekki sá flokkur sem vill hefja sauðskinnsskó til vegs og virðingar að nýju. Við viljum taka þátt í að hasla okkur völl fyrir Íslands hönd víða um heim. Þess vegna m.a. er sá orkupakki sem við ræðum hér um býsna hættulegur.
Ég verð í fyrstu ræðu minni að fara aðeins yfir það að við í Miðflokknum erum við einhvern veginn þannig gerð að við segjum bara að stjórnarskráin eigi að njóta vafans. Í margræddri greinargerð segir á bls. 43, með leyfi forseta:
„Í ljósi eðlis og inntaks valdframsals til ESA, sem felst í 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, telja höfundar vafa undirorpið hvort valdframsalið gangi lengra en rúmist innan ákvæða stjórnarskrárinnar miðað við núverandi aðstæður og forsendur EES-samningsins.“
Það eina sem við höfum haldið fram í þessum umræðum er að stjórnarskráin eigi að njóta vafans. Þess vegna höfum við líka lagt til að menn gaumgæfi 7., 8. og 9. gr. Evrópusambandsreglugerðar nr. 713/2009, þar sem fram kemur verulegt valdframsal, þar sem fram kemur vald þessarar yfirþjóðlegu stofnunar, sem er hluti þessa samnings, þessa pakka. Við höfum varað við því og segjum einfaldlega: Gerum alvörufyrirvara með því að neita að taka upp þennan orkupakka.
Menn spyrja: Hvað gerist þá? Það gerist í stuttu máli ekki neitt. Þessi pakki fer til sameiginlegu EES-nefndarinnar til umfjöllunar og eftir samningaviðræður þar um myndum við standa uppi með alvörufyrirvara vegna þess að þá myndum við hafna 7., 8. og 9. gr. reglugerðar 713/2009, þar sem þetta yfirþjóðlega stjórnvald, ACER, er í aðalhlutverki.
Andstæðingar okkar í dag hafa talað mikið um sæstreng. Við tölum ekki mikið um sæstreng vegna þess að það er ekki komið að honum. Við tölum um þetta yfirþjóðlega vald sem við ætlum að fela stofnun sem svarar engum nema Brussel. Það kemur fram að landsreglarinn, sem er hluti af þessu apparati, svarar heldur engum hér innan lands, en við eigum að vísu að borga fyrir hann. Við eigum að borga honum laun fyrir að vinna fyrir ESB á Íslandi. Og það er náttúrlega nokkuð sem við erum ekki reiðubúnir að skrifa undir. En þá kemur hin misskilningurinn. Það er misskilningurinn um að Miðflokkurinn vilji segja EES-samningnum upp eða koma honum í uppnám. Þetta er fjarri lagi, vegna þess að með því að við myndum gera alvörufyrirvara við reglugerð 713/2009 tækjum við upp þessa gerð en við tækjum hana upp á okkar forsendum með alvörufyrirvörum vegna þess að fyrirvararnir í því máli sem hér er lagt fram, herra forseti, afsakið orðbragðið, eru ekki túkallsvirði. Þeir eru ekki túkallsvirði.
Það er næsta víst að ef þetta mál fer svona í gegn, eins og hér er reifað, þá verða hér eilíf málaferli. Það verður enginn friður um þetta mál, því miður. En við erum friðarins menn, Miðflokksmenn, og þess vegna viljum við girða fyrir þetta með því einfaldlega að setja fyrirvara sem halda og taka þetta vanbúna mál og gera það betra. Vonandi verður það gert í nefndinni. Við treystum á það, en við viljum alla vega að almenningur viti um hvað þetta mál snýst.