149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:53]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson fór mikinn um að Miðflokkurinn stæði einn vörð um sjálfstæði Íslendinga. Ég hvet Miðflokksmenn til að fara að ganga í sauðskinnsskóm. Þeir sem gengu í slíkum skóm voru betur tengdir við náttúruna, umhverfið og sjálfa sig í leiðinni.

Ég held að það sé ekki rétta leiðin að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar með hræðsluáróðri eins og hefur verið stundaður hér í dag. Fram hafa komið ótrúlegustu ummæli og umsagnir um þennan þriðja orkupakka og hverju hann myndi valda hér. Hv. þingmaður fullyrti í dag að við myndum missa yfirráð yfir verðlagningu raforku til íslenskra neytenda. Hvar í veröldinni stendur þetta? Og að við myndum missa yfirráðin yfir auðlindunum, niðurgreiðslum yrði hætt til garðyrkjubænda?

Við getum nefnt fleiri dæmi. Hv. þingmaður Miðflokksins fullyrti í dag að verð á raforku til hins almenna notanda hefði hækkað eftir innleiðingu orkupakka eitt til þrjú. (BirgÞ: Það er rétt.) Það er rétt. Ég keypti líka karamellu á 5 kr. þegar ég var tíu ára en hún hefur hækkað [Hlátur í þingsal.] þannig að — (BirgÞ: Útúrsnúningar.) Þetta eru ekki útúrsnúningar. Ég hef ekki orðið vör við — ég er frá Vestfjörðum og hef þekkt raforkukaup til heimilisnota — að þau hafi nokkuð hækkað á þessum forsendum.