149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:55]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég sagði áðan að lítið hefði farið fyrir málefnalegri umræðu í þinginu í dag og það breyttist ekkert við þetta andsvar þingmannsins. Hér steig hins vegar á stokk í gær þingmaður Miðflokksins sem er einmitt notandi raforku til húshitunar. Hann reyndi á eigin skinni, eins og allir gerðu, þegar skilið var á milli framleiðslu og flutnings á raforku fyrir nokkrum árum síðan að þá hækkuðu gjaldskrár.

Nú veit ég ekki hvernig það hefur getað farið fram hjá hv. þingmanni, búandi á Vestfjörðum. Gluggapósturinn snertir okkur kannski dálítið misjafnlega eftir því hvernig við höfum það. En þetta er eitthvað sem ég hélt að allir vissu.

Hvar það standi að ACER muni taka yfir verðlagningu og annað? Jú, það er að finna í mjög miklu af upplýsingum um þetta fyrirbæri, sem er yfirþjóðlegt. Ég væri alveg til í að senda hv. þingmanni tengla um þetta þar sem hægt er að fara yfir það skipulega.

Það er kannski akkúrat þetta atriði sem við Miðflokksmenn höfum reynt að vara sem mest við í dag. Í sjálfu sér höfum við komist lítið áfram með það vegna þess að menn eru alltaf að tala um sæstreng við okkur eða tala um að við séum bara lýðskrumarar sem látum ekki staðar numið við nokkurn skapaðan hlut. En við erum að berjast við að reyna að koma því málefni á framfæri. Þar á meðal því að það er mikið framsal til þessarar stofnunar í samningnum eins og hann er núna.

Þess vegna lagði ég til áðan, hæstv. forseti, að 7., 8. og 9. gr. í reglugerð 713/2009 frá ESB yrðu aðskildar frá þessu máli í nefnd og þá gætum við með samningi við (Forseti hringir.) Evrópusambandið losnað við þær út. Þá væri mikið fengið.