ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Það vill svo til að það sem ég sagði áðan eru ekki hugleiðingar mínar. Ég las áðan upp úr títtnefndri greinargerð og á bls. 42 segir, með leyfi forseta:
„Verði 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009 tekin upp í EES-samningsins og innleidd í íslenskan rétt í óbreyttri mynd mun reglugerðarákvæðið fela í sér framsal framkvæmdarvalds til ESA sem ella væri á hendi íslenskra stjórnvalda.“
Þetta er nú bara þarna.
„Umræddar ákvarðanir ESA lúta að nýtingu takmarkaðrar auðlindar sem felst í raforkuflutningsgetu um grunnvirki“ — þess utan.
„Ekki eru fordæmi fyrir slíku valdframsali til alþjóðlegra stofnana á grundvelli EES-samningsins“ — fyrr en núna.
Þetta er ekki hugleiðingar mínar. Þær eru allt öðruvísi og grynnri. En þetta er álit bestu manna sem við eigum.
Og við erum þannig sett í þessum sal að við þurfum að reiða okkur á álit sérfræðinga í flestum málum. Hvers vegna í dauðanum gerum við það þá ekki (Forseti hringir.) þegar það liggur svona vel fyrir?