149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:59]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla bara rétt að fá að sýna þingheimi lítið línurit um raforkuverð á Íslandi frá 2006 samkvæmt skoðun verkfræðistofunnar EFLU. Það rennir ekki stoðum undir fullyrðingar um að raforkuverð á Íslandi hafi hækkað á umliðnum áratugum heldur í rauninni þvert á móti að raungildi. En það er ekki um það sem ég ætlaði að spyrja hv. þingmann og vin minn, Þorstein Sæmundsson.

Hér hefur aðallega verið vitnað í orð eða álitsgerð þessa ágæta manns og lagaprófessors Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Friðrikssonar Hirst, ágætt álit sem þó er gert áður en það þingmál sem hér liggur fyrir var fullunnið. En látum það liggja á milli hluta. Það fylgja hins vegar aðrar álitsgerðir virtra lögfræðinga og lögmanna með þessu þingmáli. Ég vil fá að vitna í m.a. Skúla Magnússon, sem segir „að umræddar gerðir þriðja orkupakkans, og heimildir 7., 8. og 9. gr. reglugerðar nr. 713/2009, taka með engum hætti til ákvarðana um tengingu fyrir flutning raforku til annarra ríkja, svo sem með lagningu sæstrengs. Því síður taka heimildirnar til ákvarðana um eiginlega nýtingu auðlinda, t.d. virkjana.“

Niðurstaða hans er því að þetta sé ekki álitamál þegar kemur að þessu. Með leyfi hæstv. forseta, segir hann síðar á bls. 40:

„Er áréttað í þessu sambandi að innleiðing umræddra gerða myndi ekki fela í sér neins konar skyldu íslenska ríkisins til þess að koma á, eða leyfa, samtengingu íslensks raforkumarkaðs við önnur ríki Evrópska efnahagssvæðisins.“

Mín spurning: Er hv. þm. (Forseti hringir.) Þorsteinn Sæmundsson að draga í efa þessa niðurstöðu Skúla Magnússonar?