ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Mér þykir vænt um að fá andsvar frá hv. þm. Óla Birni Kárasyni. Hann byrjaði enn að tala um sæstrenginn. Ég var ekkert þar. Ég var ekki að tala um sæstreng. Það vill nú þannig til, hv. þingmaður, að við Miðflokksfólkið höfum haft samband og samvinnu við fleiri lögspekinga en hér er vitnað til sem hafa haft uppi efnislega sömu niðurstöður og þær sem við höfum vitnað til. Það er náttúrlega ekki hluti þingskjala og þess vegna höfum við ekki vitnað til þess beint. Það munum við örugglega gera síðar þegar viðkomandi sendir hugsanlega inn umsagnir þegar þetta mál fer til nefndar og þá mun það náttúrlega koma fram.
Það er hins vegar mjög dæmigert fyrir þetta mál, af því að það er flókið, að við erum með álit færustu lögfræðinga sem stangast á. Þeir eru ekki sammála. Það er vegna þess að málið er flókið. En upp úr stendur að þeir aðilar sem við höfum verið í sambandi við og auk þess prófessor emeritus Stefán Már hafa sagt í okkar eyru oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að 7., 8. og 9. gr. í reglugerð 713/2009 þurfi að fara út svo við séum algjörlega trygg með það að hér verði ekki valdaframsalið sem við erum að tala um og verðhækkunin sem talað var um.
Ég geri ráð fyrir því að sá þingmaður Miðflokksins sem hér talaði um raforkuverð í gær hafi með sér í þingið eintak af raforkureikningi á næstu dögum og sýni mönnum svart á hvítu hvað þetta hafði í för með sér, þessi skipting á milli framleiðslu og flutnings raforku. Ég held að það fari ekki á milli mála og það hefur komið fram mjög víða, ekki bara hjá okkur, að raforka hækkaði við það skref verulega. Hún hækkaði um 25% um það bil, ef ég man rétt. Hún hækkaði verulega og ég held að allir menn sem nota rafmagn í einhverjum mæli hafi orðið varir við það nema kannski þessir síðustu tveir þingmenn sem hér töluðu.