149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:04]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vitnaði fyrr í dag í norskan lagaprófessor, Henrik Björneby, sem sagði að t.d. ACER hefði engar valdheimildir þegar kæmi að Íslandi eða spurningunni um hvort við ættum að leggja sæstreng eða ekki. Það er algerlega í takt við niðurstöðu í álitsgerð dr. Davíðs Þórs Björgvinssonar sem segir að valdheimildir ACER varði eingöngu grunnvirki sem ná yfir landamæri. Valdheimildir stofnunarinnar taka aðeins til þess þegar raforka er flutt yfir landamæri með samtengingu grunnvirkja. Og við erum núna að fjalla um það hvort við eigum ekki að setja hinn lagalega fyrirvara þess efnis að sæstrengur verði ekki lagður undir nokkrum kringumstæðum nema þessi salur, þessi háttvirta samkoma, heimili það og styðji með meiri hluta atkvæða. Og ég vona að (Forseti hringir.) minn ágæti félagi, hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson, (Forseti hringir.) átti sig á því hvað við erum að gera. Það er einmitt þessi breyting (Forseti hringir.) sem hefur orðið til þess að Stefán Már tekur undir að þetta sé rétta (Forseti hringir.) leiðin og örugga leiðin.