149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:07]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Virðulegi forseti. Ég var í hópi þeirra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem mestar efasemdir höfðu um þriðja orkupakkann. Ég lýsti því yfir opinberlega í haust, aðspurður í útvarpsþætti, að við svo búið og á þeim tímapunkti myndi ég greiða atkvæði gegn þriðja orkupakkanum ef hann væri borinn undir atkvæði í þinginu eins og hann leit út þá. Fyrir þessu voru þrjár meginástæður. Í fyrsta lagi taldi ég að eins og þetta væri í stakk búið myndi það fela í sér framsal á valdi sem ekki stæðist stjórnarskrána. Ég stillti mér þar upp eins og fleiri á bak við álit þess fræðimanns, sem nú er búið að vitna til ábyggilega nokkur þúsund sinnum í dag, sem lengst gekk og lengst hefur gengið í sögulegu samhengi til varnar stjórnarskránni, sem var alltaf íhaldssamastur og gagnrýnastur allra fræðimanna. Ég tók þá afstöðu að ég vildi vera þeim megin við línuna, öruggu megin við línuna, og hengdi mig á, ef svo má að orði komast, hans afstöðu af því að hann gekk lengst.

Í öðru lagi lá ekki fyrir á þeim tímapunkti í haust þegar málið kom til umræðu hvar ákvörðun um lagningu sæstrengs í rauninni lægi, hvort það væri hugsanlegt að hún lægi einhvers staðar annars staðar en hér í þessum sal.

Í þriðja lagi fannst mér ekki liggja fyrir hvort við Íslendingar værum ofurseld einhverjum þeim ákvörðunum sem lúta að sameiginlegum raforkumarkaði Evrópu jafnvel þótt við værum ekki tengd með streng. Þessar efasemdir átti ég væntanlega allar sameiginlegar með þeim hv. þingmönnum sem hér hafa kvatt sér hljóðs, einkum og sér í lagi Miðflokknum en einnig Flokki fólksins.

En hvað gerðist svo? Hvað gerðist frá því síðasta haust og þangað til núna í þessum efnum? Málið breyttist. Það væri vansagt að segja að það hefði tekist stigsbreytingum frá því í haust og þangað til núna, það hefur breyst í eðli sínu.

Í fyrsta lagi, og þá vík ég aftur að þeim atriðum sem ég taldi upp áðan, þessum þremur atriðum, er nú búið að búa svo um hnútana að sá maður, sá fræðimaður sem ég vitnaði til áðan, hefur sagt að í þeim búningi sem málið er núna felist ekki í því það framsal á valdi að stangist á við stjórnarskrá. Ég kem aðeins betur að þætti Stefáns Más Stefánssonar í þessari umræðu á eftir. Í öðru lagi er engum vafa undirorpið lengur að ákvörðun um lagningu sæstrengs verður hvergi tekin annars staðar en hér í þessum sal. Og í þriðja lagi liggur það fyrir að án strengs er Ísland með engum hætti undirsett þeim ákvörðunum sem teknar eru á þessum sameiginlega raforkumarkaði Evrópu. Með öðrum orðum: Öllum efasemdaratriðunum þremur hefur verið svarað og þau hafa verið löguð. En í stað þess að viðurkenna að málið hefur tekið þessum breytingum þá standa hv. þingmenn Miðflokksins hér og segja: En samt ætlum við að vera á móti þessu.

Ég ætla að víkja aðeins að þætti Stefáns Más því til hans hefur verið vitnað oftar en allra annarra sennilega samtals í þessum sal í umræðunum í gær og í dag.

Ég stilli mér nefnilega upp með sama hætti með Stefáni Má þegar hann segir að þetta sé óhætt og í lagi gagnvart stjórnarskrá og ég stillti mér upp með honum þegar hann sagði að þetta væri ekki í lagi gagnvart stjórnarskránni. Hv. þingmenn Miðflokksins hins vegar stilla sér bara upp með honum þegar hann sagði að þetta væri ekki í lagi, en ekki núna þegar hann segir þetta sé í lagi. Það er sérkennilegt að þegar hv. þingmenn Miðflokksins hafa vitnað til Stefáns Más í dag þá eru þeir eiginlega alltaf sammála honum og lýsa sig sammála honum nema niðurstöðunni. Þeir eru ekki sammála niðurstöðu Stefáns Más að þetta sé í lagi. Það er líka dálítið kúnstugt að hlusta á það að tilvitnunum hv. þingmanna Miðflokksins í Stefán Má lýkur yfirleitt alltaf á bls. 42 í áliti Stefáns Más. Það er vegna þess að niðurstaða hans, og þeirra Friðriks Árna Friðrikssonar, er á bls. 43 og 44. Það er með öðrum orðum alltaf vitnað til málsreifunar þeirra en aldrei til niðurstöðunnar.

Til að taka af allan vafa um þetta mál þá vil ég vitna orðrétt í lýsingu Stefáns Más sem hann gaf á þessu máli þegar þingmálið lá fyrir, þegar hann sá að búið var að taka upp hans eigið orðalag um það sem til þyrfti til að málið væri í lagi. Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson sagði hér áðan í tengslum við álitsgerð Stefáns Más og þeirra sem sömdu hana, „bestu menn sem við eigum“. Þá vil ég nú vitna til þess sem títtnefndur Stefán Már hafði um málið að segja eftir að þingmálið lá fyrir sem við höfum til umfjöllunar í dag, með leyfi forseta:

„Með þessari leið er stjórnskipunarvandinn settur til hliðar að sinni og reglugerðin innleidd á þeim forsendum að þau ákvæði hennar sem fjalla um flutning raforku yfir landamæri eigi ekki við hér á landi og hafi því ekki raunhæfa þýðingu. Það þýðir í raun að gildistaka þeirra er háð tilteknum frestsskilyrðum. Grunnforsenda þessarar lausnar er sú að þriðji orkupakkinn leggi ekki skyldur á Ísland til að koma á fót grunnvirkjum yfir landamæri heldur sé ákvörðun um það alfarið á forræði Íslands. Þetta er önnur þeirra leiða sem lögð var til í áliti okkar Friðriks og að okkar mati er upptaka og innleiðing gerðarinnar með þessum hætti heimil samkvæmt stjórnarskrá, enda er lagalegur fyrirvari um að þessi tilteknu ákvæði komi ekki til framkvæmda fyrr en lagagrundvöllurinn, þar með talið stjórnskipunarvandinn, hefur verið tekinn til endurskoðunar á Alþingi. Það er enn fremur mikilvægt að náðst hafi með orkumálastjóra Evrópusambandsins sameiginlegur skilningur hvað þessa grundvallarforsendu Íslands varðar og sérstöðu Íslands. Þótt slík yfirlýsing sé pólitísk í eðli sínu þá hefur hún engu að síður verulegt gildi og þýðingu í þessu samhengi.“

Ég vil ítreka og vísa aftur til þess sem segir í miðjunni, með leyfi forseta, „innleiðing gerðarinnar með þessum hætti heimil samkvæmt stjórnarskrá“.

Þetta er Stefán Már sem hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson taldi í þessu samhengi í hópi bestu manna sem við ættum. Og af hverju? Af því að hann hefur gengið lengst allra í að verja þessa stjórnarskrá.

Með öðrum orðum: Ég hef sömu skoðun núna og ég hafði í haust þegar ég sagðist myndu greiða atkvæði gegn þeim orkupakka sem þá lá fyrir. Orkupakkinn sjálfur hefur hins vegar breyst.

Ég skora á þá hv. þingmenn Miðflokksins sem hafa tekið til máls um þetta mál í dag, að með sama hætti og þessi orkupakki hefur breyst frá því í haust, að taka nú rökum. Það er ekki hægt að segja hér og nú „en samt“, þegar búið er að svara öllum þremur atriðunum sem mestu máli skiptu. Standa hér og segja: En samt erum við á móti því (Forseti hringir.) og við trúum bara Stefáni Má þegar hann er sömu skoðunar og við en sleppum bls. 44 í hans áliti þegar hann er á annarri skoðun.