149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:23]
Horfa

Páll Magnússon (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég man ekki eða þekki ekki til hvaða kannana er verið að vísa varðandi afstöðuna til þriðja orkupakkans, en einhvern veginn segir mér svo hugur um að verið sé að svara spurningunni — ég hefði getað svarað þessu alveg eins. Ég var örugglega í hópi þessara 83% sem fyrir nokkrum mánuðum hefðu svarað því að væru á móti þessari innleiðingu. Ég veit ekki til þess að gerð hafi verið könnun á því hvort þjóðin sé með eða á móti innleiðingu þessa þriðja orkupakka eins og hann snýr núna að Íslendingum. Þetta er annars eðlis. Þessi orkupakki er ekki sá sami og ég var t.d. á móti í haust.