149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:24]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir góða ræðu og einlæga eins og hans er von og vísa. Hann hefur skorað á okkur Miðflokksmenn að koma í pontu og ræða málið málefnalega, sem ég verð góðfúslega við.

Hann vísaði í álit Stefáns Más Stefánssonar eftir að þingmálið lá fyrir. Þar kveður við heldur annan tón en kemur fram í upphaflegri álitsgerð, þ.e. að því leyti að stjórnskipunarvandanum hefur verið frestað í bili, þ.e. ekki er búið að leysa það vandamál, en honum hefur verið frestað í bili. Í 6. kafla upphaflegu álitsgerðarinnar er rætt um viðbrögð við skýrslu höfunda, þeirra Stefáns og Friðriks, títtnefndra, þar sem þeir bregðast við athugasemdum ráðuneytisins en af hálfu þess er bent á eftirfarandi, með leyfi forseta:

„… að ákvarðanir ESA á grundvelli 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009 muni ekki beinast að einstaklingum og lögaðilum sem slíkum, heldur að innlendum eftirlitsstjórnvöldum (s.s. Orkustofnun). Að mati höfunda álitsgerðarinnar breytir það þó ekki því meginatriði, að slíkar ákvarðanir ESA munu geta haft veruleg áhrif á mikilvæga hagsmuni einstaklinga og lögaðila hér á landi, þar með talið raforkufyrirtæki og einstaka notendur raforkukerfisins.“

Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Telur hann að með innleiðingu reglugerða 713/2009 og 714/2009 í íslenskan rétt sé vegið að eða vafi leiki á um hvort það standist íslensku stjórnarskrána?