149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:29]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Ástæða þess að ég spurði er að í þingsályktunartillögunni segir, með leyfi forseta:

„Verði þessi tillaga samþykkt verður reglugerð (EB) nr. 713/2009 innleidd í íslenskan rétt með hefðbundnum hætti“ — svo heldur áfram — „en með lagalegum fyrirvara.“

Við hljótum að velta fyrir okkur: Af hverju þessi lagalegi fyrirvari? Það er búið að ræða það fram og aftur í dag. Það er til að vera með belti og axlabönd. En kemur það til með að halda? Heldur beltið? Er sylgjan á því? Eru axlaböndin á öxlunum eða eru þau niður með síðum? Verður það svo þegar á reynir að lagalegu fyrirvararnir haldi eða getur það verið að þetta muni baka stjórnvöldum mögulega skaðabótaábyrgð þegar fram í sækir, jafnvel árum eða áratugum eftir að þessi lög yrðu sett?

Ég velti því fyrir mér og þess vegna vil ég stíga varlegar til jarðar en hv. þingmaður (Forseti hringir.) og fylgja samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, (Forseti hringir.) fara eftir 102. gr. (Forseti hringir.) vísað málum í sáttameðferð (Forseti hringir.) í EES-nefndinni sameiginlegu.

(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á tímamörk.)