149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:31]
Horfa

Páll Magnússon (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef kannski ekki miklu við það að bæta sem ég sagði áðan. Heldur þessi fyrirvari með þeim hætti sem fólst í spurningu hv. þingmanns? Ja, að bestu manna yfirsýn, sem var orðalagið sem notað var um þá ágætu fræðimenn áðan, er málið heilsteypt og í lagi eins og það stendur núna. Ég kann ekki að svara spurningum sem fela í sér „ef að sé og ef að myndi“. Einhver atriði málsins koma auðvitað til meðferðar og nánari umfjöllunar í nefndinni þegar það fer fyrir hv. utanríkismálanefnd. En ég hef svo sem engu við það svar að bæta sem ég sagði áðan að þessu leyti.