ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hér hefur verið tíðrætt um fyrirvarann, lagalegan fyrirvara, og réttmætar og eðlilegar vangaveltur um hvort hann haldi. Þá er kannski rétt að rifja aðeins upp hið svokallaða hráakjötsmál. Við þekkjum það að þar voru sett lög eða lögum um matvæli og dýrasjúkdóma var breytt á þann veg að gerð var krafa um frystiskyldu. Þá héldu stjórnvöld að búið væri að leysa það mál að hingað yrði ekki flutt inn hrátt kjöt. Hvað gerðist í þeim efnum? Jú, við þekkjum það. Það var dæmt ólögmætt og við þurfum að breyta lögum í þá veru að heimila innflutning á hráu kjöti. Þess vegna er eðlilegt að bera það saman við þetta mál.
Nú á að setja hér lög, breyta raforkulögum, til að setja þennan fyrirvara. Er þá ekki töluverð hætta á því, hv. þingmaður, að þau lög verði dæmd ólögmæt með sama hætti og gerðist með frystiskylduna? Hvar stöndum við þá? Er ekki betra að vísa þessu máli fyrir sameiginlegu EES-nefndina til að fá varanlegan fyrirvara og taka ekki þá áhættu sem felst í því að breyting á raforkulögunum komi til með að vera fullnægjandi fyrirvari? Búið er að nefna það hér, hv. þm. Una María Óskarsdóttir nefndi það að ESA gæti kært okkur fyrir samningsbrot vegna þessa máls. Við eigum þá hættu yfir höfði. Þess vegna held ég að afar mikilvægt sé að (Forseti hringir.) fá það fram hvort sú hætta sé fyrir hendi að við gætum lent í því sama (Forseti hringir.) og við lentum í varðandi (Forseti hringir.) frystiskylduna.
(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á tímamörk.)