ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Í lögfræðilegu tilliti og sem lögfræðilegur leikmaður að þessu leyti vil ég samt halda því fram að í þeim lagalega skilningi eigi þetta mál fátt sameiginlegt með málinu varðandi fryst kjöt. Ég held að misskilningurinn í sambandi við frysta kjötið felist talsvert í orðanotkuninni í þinginu. Málið er auðvitað það að fryst kjöt er hrátt kjöt, það er ekki eldað kjöt. Ég held að þeir núansar sem gilda um kjötmálið, eins og það fór, fyrir þremur dómstigum, ég held ég fari rétt með, eigi fátt sameiginlegt með þessu sem snýr að innleiðingunni á þriðja orkupakkanum.
Ég skal játa það og ætla ekki að þykjast vita meira en ég veit eða hafa dýpri skilning en ég hef á lagalegum núönsum í þessu máli. Ég tel sjálfur og eftir þeim lagalegu fyrirvörum og þeim lagalegum álitsgerðum sem liggja með málinu í þinginu og við höfum lesið, að fyrir þessum málum sé vel séð og með eins tryggum lagalegum hætti og hægt er. En það útilokar auðvitað ekki allt, út af fyrir sig er hægt að kæra flest og kannski allt.