149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:36]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held einmitt að þetta séu mjög eðlilegar vangaveltur því að það er samasemmerki þarna á milli. Það er hliðstæða milli þessara mála vegna þess að í frystiskyldumálinu, við skulum orða það þannig, reyndum við að tryggja að hingað yrði ekki flutt inn hrátt kjöt. Breyttum lögum, eins og ég rakti áðan, og settum fram kröfu um frystiskyldu. Það er síðan dæmt ólögmætt og við getum ekki náð neinni niðurstöðu um það mál öðruvísi en að breyta lögum og heimila innflutning á hráu kjöti.

Þetta mál er sambærilegt að því leytinu til, hv. þingmaður, að við erum að setja fyrirvara sem við teljum að muni tryggja það að við þurfum ekki að setja okkur undir þetta sameiginlega yfirvald, ef svo má að orði komast, varðandi orkumarkaðinn. Síðan getur sú staða komið upp að það verði dæmt ólögmætt. Í staðinn fyrir (Forseti hringir.) að við förum þá leið að fá þessa fyrirvara, þá vonandi í gegnum sameiginlegu EES-nefndina. Það er miklu einfaldari og eðlilegri leið í þessu ferli.