ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ágæti þingheimur. Árið 1918 sögðu Íslendingar nei. Það leiddi til fullveldis Íslands. Árið 1944 sögðu Íslendingar nei. Það leiddi til lýðveldis Íslands. Árið 1975 sögðu Íslendingar nei. Það leiddi til þess að fiskveiðilögsaga Íslands var færð í 200 mílur. Árið 2011 sögðu Íslendingar nei. Það leiddi til þess að Íslandi var bjargað frá gjaldþroti.
Ágætu þingmenn. Mér finnst þetta mál sem rætt er í dag eigi að vera hafið yfir flokkspólitískar línur og ég heyri það líka á þeim sem stóðu hér á undan mér, kannski aðallega Framsóknarmönnum, að þeim finnst það líka, þeim finnst það skipta máli að tekin séu inn öll sjónarmið og besta lausnin fengin. Hvers vegna þarf að samþykkja gerðir 714/2009 og 715/2009 ef þær gerðir verða ekki til gagns fyrr en og ef sæstrengur verður lagður frá Íslandi? Ég bara spyr. Hvers vegna vilja þingmenn og ráðherra utanríkismála binda Ísland, eins og þessar gerðir gera ráð fyrir?
Það er auðvitað alveg ljóst að Evrópusambandið þarf aðstoð til að uppfylla skilmála sína um græna orku. Við gætum vel hugsað okkur að sambandið vilji einnig ásælast hreina vatni okkar og hreina loftið. Hver veit? Getur verið að orkupakki fjögur geymi einmitt ákvæði um slíkt? Við viljum í framtíðinni að Ísland ráði yfir orkuauðlindum sínum og taki ákvarðanir og sé ekki undirselt Evrópusambandinu.
Hér hafa mörg álit verið sett fram og lögspekingar tveir hafa verið nefndir á nafn og fleiri. Þeir tveir sem oft hafa verið nefndir, Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst, telja að það sé rökrétt og raunar óhjákvæmilegt að tekin verði afstaða til stjórnskipulegra álitaefna sem tengjast orkupakka þrjú, þ.e. um framsal valdsins.
Í greinargerð Skúla Magnússonar kemur fram það sjónarmið að framsal valds sé nauðsynlegt vegna þess að alþjóðasamningar krefjist þess og helgast það af hagsmunum ríkisins. Til viðbótar hafa komið fleiri álit og síðan eru úti í bæ önnur álit fróðra manna sem gott væri að utanríkismálanefnd fengi til sín.
Vegna þess vafa sem leikur á um heimildir og valdframsal teljum við Miðflokksmenn að þingsályktun um sæstreng sé einfaldlega ekki nóg. Hún er ekki nógu sterkur fyrirvari fyrir okkur. Eins og ég nefndi áðan í andsvari getur til að mynda það gerst að ESA höfði mál, samningsbrotamál, gegn Íslandi þar sem tilskipunin er ekki réttilega staðfest vegna þessa fyrirvara. Það hefur ekkert verið fjallað um það mál í þingsal og þyrfti eflaust að gera það.
Það er dýrmæt eign sem við eigum; orkan, fiskurinn, vatnið og loftið. Þar sem þessi vafi leikur á um stjórnskipulegar heimildir eins og margoft hefur verið nefnt, aðallega gerðir 713/2009 og 714/2009, þá óska ég þess að þingmenn taki tillit til þessa vafa um þær heimildir, hlusti á þjóðina og leggi málið fyrir sameiginlegu EES-nefndina. Það ættu ekki að vera nein vandkvæði á því og það er allt í lagi, það gerist ekki neitt. Það er bara mikil skynsemi ef Íslendingar bera gæfu til þess að gera það.