ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Nú er langt liðið á umræðuna og hefur svolítið verið kallað eftir því að meiri gaumur yrði gefinn að síðustu blaðsíðunum í áliti Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst. Ég hyggst gera það.
Álitsgerðin vekur auðvitað mikla athygli í umræðunni af þeirri einföldu ástæðu að í hana er sótt sú leið sem af hálfu utanríkisráðherra, ríkisstjórnarinnar og stjórnarmeirihlutans er lagt til að farin verði. Þess vegna er eðlilegt að hún fái mjög ítarlega og mikla umræðu eins og raunin hefur orðið. Það er um lausnir, Mögulegar lausnir, 5. kafli í álitsgerðinni sem í minni útprentun er á bls. 7, þar segir svo, með leyfi forseta:
„Sé lagt til grundvallar að valdframsal til ESA samkvæmt þriðja orkupakkanum, m.a. samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, rúmist ekki innan stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, er ljóst að ekki eru forsendur til að Alþingi aflétti þeim fyrirvara í heild sinni, og verður þriðji orkupakkinn þá heldur ekki innleiddur í íslenskan landsrétt að óbreyttu. Sé stjórnskipulegum fyrirvara viðhaldið í heild sinni þýðir það að fyrirvarinn gildir um öll EES/EFTA-ríkin, […] Slíkt kallar hins vegar á sáttameðferð á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar, sbr. 102. gr. samningsins.“
Þeir segja enn fremur:
„EES-samstarfið byggist á þeirri forsendu að EES/EFTA-ríkin innleiði löggjöf Evrópusambandsins í landsrétt sinn á þeim sviðum sem EES-samningurinn tekur til, hvort heldur óbreytta eða með aðlögunum …“
Áfram segir:
„Í því ljósi virðist nærtækt að Ísland leiti lausna sem eru fólgnar í því að aðlaga ákvæði þriðja orkupakkans þannig að þau fái samrýmst þeim takmörkunum sem stjórnarskráin setur framsali ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana líkt og ESA.“
Í framhaldinu er síðan talað um aðra lausn sem gæti falist í því að þriðji orkupakkinn verði innleiddur í íslenskan rétt en með lagalegum fyrirvara.
Í niðurlagskafla er fjallað með nákvæmlega sömu orðum í síðustu málsgrein kaflans um þessa mögulegu lausn og það er varla að nokkurt frávik sé þar á milli. Þar er talað um mögulega lausn, herra forseti.
Staðan er því þessi. Sú mögulega lausn er órannsökuð, hún fær enga umfjöllun í þessari álitsgerð. Það eru nokkrar línur í niðurlagi 5. kafla og nokkrar línur í niðurlagskafla og þetta er sami texti að meginstefnu til. Leiðin er órannsökuð. Hún hefur ekki verið borin undir þá ágætu fræðimenn sem að þessu máli hafa komið.
Spurningarnar eru því þessar helstar sem eftir standa:
Hvert er afl hins lagalega fyrirvara sem áformaður er gagnvart hinni þjóðréttarlegu skuldbindingu sem við tökumst á hendur með því að aflétta hinum stjórnskipulega fyrirvara fari svo að þessi þingsályktunartillaga verði samþykkt?
Hverjir eru gallarnir sem þeir segja ítrekað að séu á þessari lausn? Hún sé ekki gallalaus.
Hver er reynslan af þeirri sáttaleið sem þeir (Forseti hringir.) kynna til sögunnar og vísa til 102. og 103. gr. EES-sáttmálans sjálfs? Er þetta óvissuferð, herra forseti, (Forseti hringir.) eins og þeir virðast gefa til kynna eða fullkomlega raunhæfur kostur sem við ættum að taka?