ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að gera athugasemd við málflutning hv. þm. Óla Björns Kárasonar. Hann kom hér fyrr í kvöld í pontu með skjal sem sýndi fram á það að raforka á Íslandi hefði sáralítið hækkað frá árinu 2006. Þetta eru villandi upplýsingar frá hv. þingmanni vegna þess að lögin um fyrsta orkupakkann taka gildi 2003 og það er fyrst og fremst þá sem verður veruleg hækkun, sérstaklega til húshitunar. Þess vegna gefur það yfirlit sem hann dró upp mjög ranga mynd af því sem raunverulega gerðist við innleiðingu fyrsta orkupakkans. Raforkuverð til húshitunar sérstaklega og flutningur á rafmagni hækkaði verulega.
Að þessu sögðu þá ætla ég að halda áfram þar sem frá var horfið þegar ég var fyrr á mælendaskrá í dag og víkja að því sem varðar Norðmenn og komið hefur fram í málflutningi þeirra sem eru fylgjandi þessum orkupakka. Þeir hafa sagt að samningsstaða Norðmanna hafi styrkst gagnvart stóriðjunni þegar Norðmenn lögðu sæstreng. Þeir segja jafnframt að Norðmenn eigi þess kost að flytja raforkuna út ef stóriðjan vilji ekki greiða uppsett verð. Þá spyr maður sig: Hafa menn þá ekki áhyggjur af því að álfyrirtækin loki bara og þar með missi hundruð manna vinnuna? Það er svo sannarlega sjónarmið sem vert er að halda fram.
Í þingsályktunartillögunni sem hér er til umfjöllunar segir að upptaka þriðja orkupakkans í EES-samningnum feli ekki í sér neina skyldu eða skuldbindingu íslenskra stjórnvalda til að tengjast hinu sameiginlega raforkukerfi Evrópusambandsins með lagningu sæstrengs eða með öðrum hætti. Þetta er náttúrlega lykilatriði. Hér tala menn um að það sé um fyrirvara að ræða sem byggist í raun og veru á því að við séum ekki tengd raforkukerfi Evrópusambandsins og myndi einungis gerast með sæstreng. Þetta er málflutningur sem stjórnarliðar og þeir sem eru fylgjandi þessari tillögu hafa svo sannarlega haldið uppi hér í allan dag.
Það er nú þannig að það er bara spurning um tíma hvenær slíkur strengur verður að veruleika. Þá eru íslensk stjórnvöld, samkvæmt 8. gr., skyldug til þess að styðja við áform um lagningu slíks strengs. Þarna er á ferðinni klassísk blekking í íslenskum stjórnmálum hjá fylgjendum þessarar tillögu. Með því að samþykkja þetta mál er verið að undirbúa jarðveginn. Það er augljóst mál. Þá er allt tilbúið til að taka á móti sæstrengnum og hann kemur og verður samþykktur. Það þarf ekki annað en Samfylkinguna og Viðreisn í ríkisstjórn og þá rennur þetta í gegn eins og við þekkjum.
Herra forseti. Það er rétt að víkja að því hvernig forsendur hafa breyst í ýmsu frá því að EES-samningurinn tók gildi. Þetta hef ég rakið í andsvörum en ég vil aðeins hnykkja á því. Það má geta þess að fyrrverandi utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, sem var einn aðalsérfræðingurinn í því þegar EES-samningurinn var gerður á sínum tíma, hefur sagt að það hafi aldrei verið gert ráð fyrir því og aldrei rætt um sameiginlegan orkumarkað í þeirri samningsgerð, hvað þá heldur matvælalöggjöfina sem hefur haft og mun hafa gríðarleg áhrif á okkar ágæta landbúnað. Þarna eru tvö stór mál sem enginn sá fyrir að yrðu sett inn í þennan samning.
Kjarni málsins er: Sá EES-samningur sem samþykktur var í þinginu fyrir 25 árum er ekki sá EES-samningur sem við erum aðilar að í dag. Það kristallast í þessu stóra máli sem hér er til umfjöllunar.
Að lokum, herra forseti. Það er alltaf verið að bæta við þennan samning stórum málaflokkum sem aldrei var (Forseti hringir.) lagt upp með í upphafi. Við þurfum ekki að leggjast flöt við öllu því sem bætt er við þennan samning. (Forseti hringir.) Norðmenn höfnuðu pósttilskipuninni og það gerðist ekki neitt. Við eigum að hafna þessum orkupakka, herra forseti. (Forseti hringir.) Þá og aðeins þá munum við áfram búa við ódýra raforku til heimila og fyrirtækja í landinu.