149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:39]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M):

Hæstv. forseti. Hér hefur farið fram að mestu leyti ágæt umræða sem hefur verið málefnaleg á köflum og oftast nær, þó að eitthvað hafi vantað upp á í sumum tilfellum. En stundum hefur mér fundist eins og það sé nokkur misskilningur sem hefur farið á milli manna. Annars vegar hafa menn rætt um tengivirkin og sæstrenginn eingöngu og að inn í þingsályktunartillöguna séu byggðir fyrirvarar sem eigi svo að koma fram í lagafrumvarpi og að með þeim fyrirvörum sé algerlega tryggt að aldrei verði lagður sæstrengur til eða frá Íslandi nema með meirihlutavilja Alþingis. Aðrir flutningsmenn eða meðmælendur þessarar þingsályktunartillögu, til að mynda hv. þm. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hefur talað um að hér verði aldrei lagður sæstrengur. Hann talar í sömu svipan um loftslagsmál og græna orku, þetta sé mikilvægt til að hjálpa Evrópu í stóra samhenginu. En það er hæpið að við hjálpum nema við getum komið orkunni til Evrópu. Það verður ekki gert öðruvísi en með sæstreng, alla vega ekki miðað við þá tækni sem við búum við í dag.

Við Miðflokksfólk höfum talað um lögmæti fyrirhugaðrar aðferðar við innleiðingu orkupakkans, íslensku stjórnarskrána. Íslenska stjórnarskráin er þannig vaxin að hún er þögul þegar kemur að heimildum til að framselja ríkisvald til alþjóðlegra stofnana.

Í margtéðri skýrslu félaganna Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst segir í kafla 4.2.2 á bls. 27 að engar skýrar heimildir sé að finna í íslenskum stjórnskipunarreglum fyrir framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana, eins og áður segir. Þarna er vitnað til heimildar sem skrifuð er af ekki minni lögspekingi en Björgu Thorarensen.

Í þessu tilfelli langar mig að vitna aftur í skýrsluna, með leyfi forseta. Á bls. 25 segir:

„Eins og áður greinir varða flestar reglurnar, sem fela í sér valdframsal til ESA, aðgang að grunnvirkjum yfir landamæri og rekstraröryggi þeirra. Slíkum grunnvirkjum, t.d. sæstreng, hefur ekki verið komið á fót hér á landi. Það breytir því þó ekki að þriðji orkupakkinn verður ekki tekinn upp í íslenskan landsrétt nú nema hann standist stjórnarskrána. Verður ákvörðun Alþingis um hvort aflétta eigi stjómskipulegum fyrirvara Íslands við þriðja orkupakkann og innleiða hann í íslenskan landsrétt að miðast við þá forsendu að grunnvirkjum yfir landamæri verði komið á fót hér á landi, en við þær aðstæður myndi reyna á umrætt valdframsal til ESA, einkum samkvæmt reglugerð nr. 713/2009.“

Hæstv. forseti. Nú er fjórði orkupakkinn á leiðinni og það er óumdeilt. Prófessorar og lagaskrifstofur úti í heimi eru að skrifa um hvað í honum felist og hvað muni koma til breytinga. Þar eru téðar reglugerðir 713 og 714 frá 2009 einmitt taldar upp sem hluti af þeim þriðja orkupakka sem mun breytast í orkupakka fjögur. Er tekið tillit til þess í því lögfræðiáliti sem menn tefla fram og sagt að með því að setja lagalega fyrirvara við reglugerðirnar eins og þær standa í dag munu þeir lagalegu fyrirvarar halda eftir breytingu á reglugerðunum í orkupakka fjögur þegar hann hefur verið innleiddur.

Ég hef áhyggjur af því og ítreka að ég tel best að við höfnum (Forseti hringir.) innleiðingunni sem lögð er til hér og vísum henni til sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem við getum (Forseti hringir.) samið á þeim grundvelli sem EES-samningurinn tilgreinir.