149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

raforkulög og Orkustofnun.

782. mál
[21:59]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Ég viðurkenni að þessi aðkoma Orkustofnunar að verða landsreglari vekur nokkurn ótta. Þessi landsreglari eða þetta hlutverk Orkustofnunar verður á valdi yfirþjóðlegrar stofnunar og það þarf ekki að svara til neins nema Brussel. 10% sektarheimild gæti þýtt t.d. í tilviki Landsvirkjunar allt að 5–6 milljarða.

Ég spyr ráðherrann hvort henni ói ekkert við þeim áhrifum sem þetta hefur og hvort ekki sé ástæða til að staldra aðeins við og hugsa sinn gang í þessu. Ég veit að þetta er fylgifiskur þess máls sem við höfum núna rætt í tvo daga og við Miðflokksmenn höfum lýst efasemdum okkar um að standist stjórnarskrá.

Ég verð að viðurkenna að þetta viðhengi er ekki alveg til að auka mér bjartsýni. Því verð ég að spyrja ráðherra: Finnst henni ekki nokkur ógn í þessu sjálfstæði eða þessu yfirþjóðlega valdi? Og til að svara áskoruninni þá verð ég líka að spyrja: Hvað verður um börnin?