raforkulög og Orkustofnun.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Það er alltaf réttmæt spurning að velta því upp hvað verði um börnin. Ég nefni sérstaklega að í störfum mínum almennt legg ég það mjög í vana minn að hugsa einmitt um það, hvort sem það er í þessu máli eða öðru, og hef þess vegna sannfæringu fyrir því að við séum á réttri leið varðandi þróunina á þessu máli og væri annars ekki að tala fyrir því.
Það er bara alls ekki rétt að hér sé um að ræða einhvern landsreglara. Það er heimatilbúið orð sem ég fann ekki upp og finnst hvergi í regluverkinu sjálfu. Við erum einfaldlega að efla sjálfstæði Orkustofnunar. Hér er velt upp heimildum ACER í einhverju samhengi við möguleg sektarákvæði eða sektarákvarðanir sem geti numið nokkrum milljörðum t.d. á Landsvirkjun. Heimildir ACER ná alls ekki til afskipta af slíkum ákvörðunum, þannig að það sé alveg klárt.
Að lokum er spurt hvort ég telji að einhver ógn stafi af þessu máli. Ég tel svo alls ekki vera og myndi almennt halda að aukin neytendavernd, aðhald á fyrirtæki, hvort sem þau eru opinber eða í einkaeigu, og aukið valfrelsi neytenda til að velja sér fyrirtæki til að versla við sé af hinu góða. Ég er því alls ekki á þeirri skoðun að nokkur ógn stafi af þessu máli, enda hefur það verið unnið mjög vel. Því hefur verið komið skýrt á framfæri hvað nákvæmlega felst í þessum þriðja orkupakka og hvað nákvæmlega felst alls ekki í honum.