149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

raforkulög og Orkustofnun.

782. mál
[22:06]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta kynningu á frumvarpinu sem er um margt áhugavert. Það sem mig langaði að koma aðeins inn á er verkefni Orkustofnunar á sviði raforkueftirlits sem leiðir af þriðju orkutilskipuninni, þá sérstaklega það sem segir í 1. lið, með leyfi forseta:

„Nýjar skyldur á sviði neytendaverndar og eftirlits með smásölu- og heildsölumarkaði raforku. Athuganir á starfsemi raforkumarkaðar og ákvarðanir um að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að stuðla að virkri samkeppni og tryggja að markaðurinn starfi eðlilega.“

Nú stendur jafnframt í kaflanum um mat á áhrifum frumvarpsins að það feli í sér tæknilegar breytingar á útfærslu sem hafi ekki bein áhrif á einstaklinga og er því ekki litið svo á að frumvarpið hafi áhrif á sjónarmið varðandi kynjaskiptingu og ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi teljandi áhrif á atvinnulífið eða fyrirtæki.

Mig langar að spyrja ráðherra hvort þetta sé algerlega rétt, hvort þetta hafi ekki einmitt jákvæð áhrif á þessa aðila með bættu eftirliti. Starfandi forstjóri ACER kom inn á þetta á ársfundi Orkustofnunar í síðustu viku og talaði þar um að þau hefðu náð fram milljarðs sparnaði á ári með bættu eftirliti og bættri umgjörð kerfisins og sömuleiðis með bættri neytendavernd og öðrum slíkum þáttum sem finna má í frumvarpinu og með eflingu Orkustofnunar. Munum við ekki einmitt sjá jákvæð áhrif af þessum breytingum?