raforkulög og Orkustofnun.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Sú vinna sem við höfum hafið er svo sem ekki ný af nálinni. Við erum að taka næsta skref. Það var starfshópur sem vann að þessu árið 2015 og skilaði skýrslu. Sömuleiðis hefur Ríkisendurskoðun komið því á framfæri að eignarhaldið eins og það er í dag sé óheppilegt. Í dag á sem sagt Landsvirkjun stærsta hlutann og önnur dreifiveitufyrirtæki sömuleiðis.
Ég tek undir með hv. þingmanni. Það er heppilegra í mínum huga að Landsnet sé einfaldlega í eigu ríkisins en í eigu orkufyrirtækja. Það eykur sömuleiðis trúverðugleika gagnvart því fyrirtæki. Sú staða er sömuleiðis með þeim hætti í Noregi og til að nefna það þá hjálpaði það mjög í umræðunni um þriðja orkupakkann að Statnett þar í landi er í eigu ríkisins. Ég held að við séum að gera rétt með því að fara í þá vinnu.