149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

raforkulög og Orkustofnun.

782. mál
[22:14]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er nú ekki þannig að maður geti sem Sjálfstæðismaður í ráðherrastóli eingöngu skorið niður með miklum stuðningi frá þinginu almennt eða hagrætt þannig að við tökum verkefnin sem eru í höndum ríkisins og setjum annað. En í þessu tilfelli erum við að opna á samkeppnismarkað, sem við höfum gert fyrir löngu síðan, og bæta í þegar kemur að sölu. Ef það skilar sér í betri neytendavernd, aukinni samkeppni, lægra verði, frekari tækifærum í atvinnulífinu og tækifærum einstaklinga til að stofna fyrirtæki og láta til sín taka, þá dregur að einhverju leyti úr umsvifum báknsins þeim megin þrátt fyrir að það kalli á aukin verkefni Orkustofnunar. Eftirlitið þarf að vera í lagi. Það er líka partur af því að búa í siðuðu samfélagi með öflugt atvinnulíf. Ef við viljum öfluga samkeppni, þá kallar það á eftirlit. Jafnvel þótt ég væri argasti frjálshyggjumaður, sem ég flokka mig svo sem kannski ekki, þá held ég að þeir meira að segja viðurkenni að eftirlit er hluti af því að hafa heilbrigt atvinnulíf almennt.

Það er meira að segja þannig að þau fyrirtæki sem munu þurfa að greiða þetta gjald eru ekki endilega á móti því að verið sé að hækka gjaldið. Ég tek líka fram að það hefur ekki verið hækkað í átta ár. Bara það myndi nú skýra hækkunina að langmestu leyti. Það er alls ekki sjálfgefið að þessi hækkun fari út í verðlag.