149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

raforkulög og Orkustofnun.

782. mál
[22:34]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Umræðan í dag hefur að mestu leyti snúist um öll fjögur þingmálin í einu lagi. Við höfum rætt klukkustundum saman, ekki bara um þá þingsályktunartillögu sem var til umræðu heldur í raun og veru allt þetta mál. Ég ætla að leyfa mér að halda því áfram að nokkru leyti.

Það er nefnilega nauðsynlegt að ítreka aðalatriðin enn einu sinni í þingræðu, hér og nú. Það er vissulega þannig að stefna Evrópusambandsins er sú að samtengja öll Evrópusambandslöndin þegar kemur að raforkunýtingu og raforkusölu. ESB-löndin hvert fyrir sig hafa þess utan keypt græna raforku af Noregi. Það má kalla það helsta landið utan Evrópusambandsins sem yfir höfuð eru í slíkum viðskiptum. Það hefur gerst allan þennan tíma í þeim takti sem Norðmenn sjálfir hafa ákveðið. Þeir standa utan ESB, eru í EES en eru ekki aðilar að þriðja orkupakkanum enn sem komið er.

Hitt er svo staðreynd að sérhvert Evrópusambandsland sem framleiðir raforku ræður sjálft hvað fer til heimabrúks af rafafli og hve miklu landið streymir frá sér af raforku. Það er þá í samræmi við eigin þarfir og getu landsnets síns. Um annað eru engin dæmi. Ég skora á þingmenn Miðflokksins að finna dæmi um það að einhver stofnun í Evrópusambandinu, ACER, hafi skikkað Evrópuland til að auka eða jafnvel minnka raforkuframleiðslu og leggja raflínur, jafnvel sæstrengi. Það er ekki hægt, þess vegna skora ég á Miðflokkinn að reyna það.

Það er alveg sama hve oft Miðflokkurinn staðhæfir að hlutverk þriðja orkupakkans sé nákvæmlega að gera slíkt, það er rangt. Innstreymt rafmagn í einhverju landi stýrist af notendasveiflum hvers sólarhrings í gegnum samtengingar sem fyrir eru og af tæknilegum forsendum, jafnt landsnetsins í viðkomandi landi sem innri þarfa þess. Ekkert land er neytt til að selja meiri raforku en er á lausu, t.d. með því að loka innlendum iðjuverum eða byggja upp ný orkuver, ekki fremur en að kaupa of mikla orku, það kaupir aðeins orku í samræmi við þarfir sínar.

Um þetta finnst í raun og veru ekkert dæmi sem ég hef getað grafið upp. Ég finn ekki staf um slíkar heimildir í plöggum ESB og hef þó leitað víða. Ákvarði eitthvert land að auka við orkuframleiðslu umfram þarfir, t.d. að byggja til þess nýtt orkuver, gerist það á forsendum landsins, stærðin, legan, gerðin o.s.frv. Af hverju stýrist slíkt? Það stýrist af hagnaðarvon ríkisins, ef um er að ræða ríkisfyrirtæki eða innlendra aðila í landinu sem eiga rétt á því að byggja virkjanir, eða af því að erlendum fjárfestum eru seld eru réttindi til byggingar slíks vers. Við vitum að þetta er staðreynd í sumum Evrópuríkjum.

Það eru engin skylduákvæði um að gjalda þurfi fortakslausu jái við að auka framleiðsluna eða tvöfalda flutningsgetuna eða hvaðeina. Við getum svo horft á markaðinn. Hann er vissulega grimmur, sækist eftir hagnaði og því að komast í orku, en ávallt er sala um tengingu úr landi einboðin sem frjáls viðskipti og liðugt flæði raforku undir hatti og undir eftirliti þeirrar stjórnar sem hér hefur verið kallaður landsreglari og við höfum stundum kallað ACER, því að það er hlutverk hennar. Ef til er ónýtt umframorka, vistvæn eður ekki vistvæn, í einhverju Evrópusambandslandi er ekki svo að landinu sé gert skylt að selja hana úr landi að heimtingu bandalagsins en það finnst vissulega hvatning að gera það til þess að ná loftslagsmarkmiðum eða til að græða fé. Og um það snýst markaður, snúast áætlanir innlendra stjórnvalda um að ná loftslagsmarkmiðum o.s.frv. Hitt gæti e.t.v. gerst að ACER teldi einhvers staðar að aukið rafmagn yfir landamæri væri nauðsynlegt, t.d. vegna raforkuskorts í nágrannalandi einhvers lands, en það hefur þá kært stöðu sína, kært nágranna sinn og er með tengingu fyrir við hann. Það gæti líka gerst í tilviki þegar upp koma deilumál vegna orkusölu um tengingu sem er fyrir, t.d. vegna verðs eða öryggisþátta eða slíks. Til þess er stofnunin. Hún er ekki til að fyrirskipa viðkomandi landi að bæta við svo og svo mörgum megavöttum og selja þau úr landi. Það er rangt.

Danir og Svíar hafa ekki verið neyddir eða skyldaðir til orkusölu eða þeim fyrirskipaðar viðbætur við eigin orkuframleiðslu. Getið þið nefnt mér dæmi um það? Nei, það er ekki hægt. Munu Norðmenn, verði þeir aðilar að þriðja orkupakkanum með fyrirvörum sínum og af því að við innleiðum orkupakkann, ekki fara eftir eigin hentugleikum? Munu þeir fara eftir skipunum um fleiri vindorkugarða, nýjar vatnsvirkjanir, nýja sæstrengi að kröfu ESB eða ACER?

Ég tel að það væri brot á EES-samningnum. Það væri utan valdsviðs ACER því að stofnuninni er lýst í reglugerð ESB frá 2009 og hvergi í henni er nokkru lýst sem verkefni þessarar stofnunar sem kemst í hálfkvisti við það sem Miðflokkurinn segir um valdsvið stofnunarinnar í Evrópusambandinu sjálfu, hvað þá gagnvart okkur.

Fullyrðingar um að Ísland missi yfirráð yfir orkulindum sínum ef það verði neytt til að taka á móti sæstreng eru hvorki reistar á nokkrum raundæmum, þess vegna hef ég eytt í það tíma, né lagaheimildum um slíkt frá síðustu fimm til tíu árum. Þær fullyrðingar eru reistar á oftúlkun texta sem slitinn er úr samhengi, jafnvel byggðar á misskilningi — ég get ekki alltaf greint það — eða hráum rangfærslum.

Það er vissulega svo að við getum ekki árið 2019, verði þessi mál samþykkt, tryggt að engin íslensk ríkisstjórn og ekkert Alþingi samþykki sæstreng út öldina. Það að halda því fram að þetta verði af því að forstjóri Landsvirkjunar hafi sagt það eða af því að áætlanir voru um það fyrir fimm árum stenst ekki rýni. Það er meira að segja búið að fara fram á það, sem verður gert, að fyrirbærið IceLink verði tekið að fullu úr sambandi, ef við orðum það þannig, af kortum og úr þeim fyrirætlunum um tengingar innan Evrópu vegna þess að við höfum fullan rétt til þess og það er vilji þessarar ríkisstjórnar.

En við getum lágmarkað áhættuna, að mati lögspekinga, og innleitt þennan þriðja orkupakka með þeim fyrirvörum sem hefur verið lýst margoft í dag og með öllum þeim atriðum sem ekki snúast um boð og skyldur heldur markaðsviðskipti.

Verði sæstrengur á Íslandi lagður þarf í hann orku og hvort tveggja verður á fullu forræði íslenska ríkisins, hvort þeir selji 500 megavött eða 1.000 megavött og hvaða virkjanir munu framleiða þá orku. ACER mun þá auðvitað hafa leyfi til að skipta sér af því að orkuflutningar héðan til Evrópu og frá Evrópu hingað séu með réttum skikk og er það kæranlegt ef mönnum finnst ekki svo. Þetta munum við þurfa að undirgangast ef lýðræðislega kjörið Alþingi ákveður svo árið 2040, 2060 eða 2080. Að gera það tortryggilegt, gera sjálft lýðræðið tortryggilegt er ekki góð pólitík.

Ég ætla að segja að lokum að Miðflokkurinn segist standa vörð um hagsmuni landsins í orkumálum. Ég hafna því málefnalega og hef reynt að útskýra af hverju. En ég spyr um hvað Miðflokkurinn stendur vörð með því að afflytja staðreyndir um helstu grunnatriði málsins, með því að halda því fram að málið snúist um yfirráð Íslands yfir eigin auðlindum. Vissulega er það þannig meðal íslensku þjóðarinnar að við viljum hafa full yfirráð. Þess vegna er mjög auðvelt að halda slíku stöðugt fram, alveg sama hvað við höfum sagt og hvað hæstv. ráðherra hefur sagt, og bera það á borð aftur og aftur að þetta sé baráttan um íslenska orku til frambúðar, en það er rangt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)