raforkulög og Orkustofnun.
Hæstv. forseti. Hér ræðum við frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun, EES-reglur, viðurlagaákvæði, sem hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mælti fyrir í kvöld. Til að lengja ekki mál mitt ætla ég ekki að ræða neitt annað en þetta frumvarp. Við erum búin að ræða svo mikið þingsályktunartillöguna sem var til umræðu í dag og í gær. Hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson sagði að í raun og veru værum við búin að ræða öll málin fjögur sem eru á dagskrá. En ég ætla að vera stuttorður.
Til umræðu er lagafrumvarp um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun. Frumvarp þetta er óhjákvæmilegur fylgifiskur innleiðingar þriðja orkupakkans. Þetta frumvarp gengur m.a. út á að efla sektarheimildir Orkustofnunar. Þetta snýst um að ætlunin er að breyta hlutverki Orkustofnunar á þann hátt að stofnunin verði útibú yfirþjóðlegrar stofnunar, ACER. Hlutverk ACER hefur verið tíundað rækilega í dag. Eins og þingheimur gerir sér vonandi grein fyrir mun stofnunin, verði þriðji orkupakkinn innleiddur, hafa mikil áhrif á orkumarkaðinn hér á landi.
Það er að sjálfsögðu ekki svo að allt það sem kemur fram í frumvarpinu sé óþarft, alls ekki. Að sjálfsögðu eigum við að efla og styðja við neytendavernd. Spurningin er bara hvort við þurfum að gera það með beinni tilskipun. Ég ætla að leyfa mér að vitna í frumvarpið þar sem segir, með leyfi forseta:
„Sektir skv. 1. mgr. geta numið allt að 10 hundraðshlutum af veltu fyrirtækis.“
Ég bendi á að orkumarkaðurinn hér á landi er einungis brotabrot af þeim stóra markaði sem tilheyrir Evrópska efnahagssvæðinu og því eiga slíkar heimildir tæplega við á örmarkaði okkar.
Ég vil enn fremur benda á að í 8. gr. frumvarpsins segir að við 1. gr. laga um Orkustofnun, nr. 87/2003, með síðari breytingum, muni bætast við nýr málsliður, svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Orkustofnun er sjálfstæð í ákvörðunum sínum þegar stofnunin sinnir raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum.“
Hér er að því er virðist verið að færa valdsvið Orkustofnunar frá valdi ráðherra. Einnig kemur fram í frumvarpinu að raforkueftirlitsgjald gæti breyst og sennilega muni það hækka. Ég spyr hvort við viljum halda áfram á þeirri braut.