149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

svör við fyrirspurnum.

[15:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Fyrir rúmlega fimm mánuðum lagði ég fram fyrirspurn til skriflegs svars til hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um sölu á upprunaábyrgðum raforku. Fyrirspurnin innihélt sex spurningar þar sem ég spyr m.a. um hvort þessi sala innlendra orkufyrirtækja á upprunaábyrgðum raforku geti mögulega haft áhrif á raforkuverð hér innan lands.

Fyrirspurnin var lögð fram 7. nóvember 2018 og hæstv. ráðherra hefur ekki gert neina grein fyrir því hvers vegna henni hefur ekki verið svarað. Samkvæmt 6. mgr. 57. gr. þingskapa áskilja ráðherrar sér að jafnaði 15 virka daga til að svara en ella skuli ráðherra gera forseta grein fyrir hver ástæða tafanna sé. Það hefur ráðherra ekki gert svo séð verði. Ég vil því beina því til hæstv. forseta að ganga eftir því að fyrirspurninni sé svarað í samræmi við þingsköp.