svör við fyrirspurnum.
Herra forseti. Ég vil taka undir með félaga mínum, hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni, það er óþolandi að þurfa að bíða svona eftir svörum við fyrirspurnum. Ég hef aðeins orðið fyrir barðinu á slíku og nú liggur t.d. fyrir skrifleg fyrirspurn frá mér til fjármála- og efnahagsráðherra um undanskot í skattkerfinu sem er búin að vera að þvælast síðan held ég snemma á þessu ári. Ekki fyrir löngu þurfti ég að leggja fram fimmtu fyrirspurn mína til fjórða ráðherrans um fullnustueignir Íbúðalánasjóðs sem er núna hjá dómsmálaráðherra, búin að vera þar í þrjár vikur.
Ég kannast ekki við að neinn þessara ráðherra hafi beðið um frest til að svara fyrirspurnum sem frá mér hafa komið um þetta og sú sem ég beið lengst eftir, eins og ég segi, þar var komið upp undir ár. Ég beini þeirri bæn til forseta að hann taki þessi mál aðeins fastari tökum vegna þess að þetta er að verða plagsiður, því miður.