149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

svör við fyrirspurnum.

[15:04]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill ítreka að lögð er á það áhersla af hálfu þingsins að ráðuneyti biðji um lengri frest ef þau ná ekki að svara innan tilskilins tíma og sömuleiðis að reynt er að fylgjast með því að ekki sé óhóflegur dráttur á svörum við fyrirspurnum, en fyrir því geta verið ýmsar ástæður eins og ég veit að hv. þingmaður þekkir mætavel eftir sína miklu glímu við að fá fram upplýsingar um fullnustueignir Íbúðalánasjóðs.