149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Í dag eru um 1.000 manns á biðlista eftir liðskiptaaðgerð. Þær tölur segja auðvitað aðeins lítið til um hversu margir bíða í raun eftir því að komast að og sumir eru einfaldlega að gefast upp á biðinni og aðrir borga úr eigin vasa. Við vitum um Rögnu. Henni stóð til boða að koma strax í aðgerð á sjálfstætt starfandi klíník hér í bæ, en þar hefði hún þurft að greiða 1.200.000 kr. úr eigin vasa. Það er enginn samningur við Sjúkratryggingar, ekki heldur varðandi þær aðgerðir þar sem biðlisti er langur, þannig að Ragna fór á einkaspítala í Svíþjóð þar sem aðgerðin kostar ríkið 2 millj. kr. Ragna þessi er heppin. Hún er tveggja barna móðir og fær nú loksins að hlaupa um með krökkunum sínum. Hún er nógu vel á sig komin til að þola ferðalag til Svíþjóðar. En ef fyrirkomulagið er hugsað fyrir þá einstaklinga sem minnst mega sín, og ég hefði haldið að hugsa ætti til þeirra sem mest þurfa á því að halda, þá gerir það ekki mjög mikið fyrir þann hóp, þ.e. eldri borgara og einstaklinga sem hafa aðra og undirliggjandi sjúkdóma. Þeim er einfaldlega ekki heimilað að fara í svona ferðalag eða treyst til þess. Þeim er bara sagt að bíða heima, að vera rólegir og bryðja töflur.

Ég vil benda þeim á sem eru hér á þingi og telja sig vera gæslumenn skattgreiðenda, að hver aðgerð í útlöndum á einkaklíník, sem ekki má tala við hérna heima, kostar vel yfir 2 millj. kr. Til að gæta allrar sanngirni þá fær ríkið einhverja þúsundkalla til baka.

Aðgerðir hér heima kosta 1.200.000, eins og ég gat um áðan. Vel að merkja fær ríkissjóður til baka allt að því hálfa milljón króna í formi skattgreiðslna og virðisaukaskatts.

Enn og aftur segir kerfið: Bíðið þið bara og bryðjið töflur. Við erum með kennitöluna ykkar. Það sjá það allir að þetta gengur ekki til lengdar. Við í Viðreisn, ásamt þingmönnum fleiri flokka, lögðum fram frumvarp í byrjun nóvember um að taka nákvæmlega á þessu máli, en dagskrárvaldið á þingi segir: Þetta mál fæst ekki á dagskrá. Það eru pólitísku skilaboð meiri hlutans á þingi.