störf þingsins.
Forseti. Síðustu daga hefur þó nokkuð mikill tími og orka þingmanna og samfélagsins farið í það að rökræða staðreyndavillur. Vissulega er eitt af hlutverkum Alþingis að ræða málin ofan í kjölinn en mér finnst hálfótrúlegt að horfa upp á þingfólk nýta tímann í að skapa villandi og beinlínis hættulega orðræðu þegar þingið virðist ekki vilja gefa sér tíma til að ræða tvö mál sem varða grundvallarréttindi fólks. Þessi mál ættu svo sem ekki að hafa farið fram hjá okkur enda hefur verið vakin athygli á þeim ítrekað fyrir framan Alþingishúsið.
Í fyrsta lagi ætla ég að nefna málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ákall þeirra gæti ekki verið skýrara en stjórnvöld hafa ákveðið að loka augunum gagnvart því. Ítrekað er brotið á réttindum fólks. Svo ég nefni nokkur dæmi njóta þau sem búa á Ásbrú hvorki friðhelgi einkalífs né ferðafrelsis. Lögreglan hefur misbeitt valdheimildum sínum gagnvart friðsamlegum mótmælum og það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum það offors sem lögreglan hefur beitt mótmælendur. Auk þess hefur verið bent á þá ógagnsæju stjórnsýslu sem Útlendingastofnun viðhefur í málefnum útlendinga og þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd. Og hvað heyrist frá Alþingi? Ekkert. Þögnin er gjörsamlega ærandi. Mannréttindi eru alþjóðleg og íslenska ríkinu ber að virða mannréttindi allra óháð því hvort þau séu með íslenskar kennitölur eður ei.
Í öðru lagi hafa fyrir utan húsið verið regluleg verkföll ungmenna fyrir loftslagið. Ungmenni víðs vegar í heiminum hafa lýst yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu loftslagsins. Kallað er eftir aðgerðum núna strax. Svo er komið að við getum ekki lengur leitt hjá okkur þessar áhyggjur. Þær eiga fullkomlega rétt á sér og öllum ætti að vera ljós sú alvarlega staða sem er nú uppi sem hefur leitt til þess að unga fólkið sér ekki fram á að geta lifað öruggu lífi, hvorki á Íslandi né annars staðar. Á meðan sumir þingmenn halda hér fram staðreyndavillum í ræðustól og aðrir nýta tíma sinn í að hrekja þær villur er brotið á réttindum viðkvæmustu einstaklinganna og umhverfisins. (Forseti hringir.) Hvenær ætlum við að ræða það og koma með raunverulegar lausnir? Við erum að renna út á tíma og við munum fá þetta allt í bakið ef ekki er gripið til aðgerða strax.