149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Virðulegur forseti. Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu um skipan Landsréttar setti töluvert strik í reikninginn hvað varðar starfsemi þessa mikilvæga dómstóls þegar hann féll. Störf dómsins féllu fyrst niður í heila viku og síðan sögðu fjórir dómarar sig frá frekari vinnslu mála. Það er mikilvægt að á þessu vandamáli sé tekið af festu en enn og aftur virðist ríkisstjórnin ekki hafa haft neitt plan í þessum efnum. Það var eins og hún hefði ekki búist við því að þetta gæti mögulega orðið niðurstaða málsins sem þó var bara annar möguleiki af tveimur í því. Enn bólar ekkert á viðbrögðum um það hvernig eigi að reisa dómstólinn til fullrar virkni að nýju.

Í gær var tilkynnt að máli þessu skyldi skotið til yfirdóms Mannréttindadómstólsins. Það gefur augaleið að það mun taka allnokkurn tíma að fá endanlega niðurstöðu í þetta mál. Það olli því miklum vonbrigðum að þeirri ákvörðun fylgdu engar áætlanir um það hvernig ætti að koma þessum mikilvæga dómstól í fulla virkni. Raunar lýsti hæstv. ráðherra því yfir að ekki væru nein áform uppi um að fjölga dómurum tímabundið til að svo mætti vera. Það er rétt að minna á þær áhyggjur sem formaður dómstólasýslunnar lýsti í fjölmiðlum fyrir fáeinum dögum, að afkastageta dómsins væri verulega skert vegna þessa og það væri vandi sem gæti undið mjög hratt upp á sig. Það er því mjög mikilvægt að á þessu sé tekið af festu. Það er mjög alvarlegt ef verulegar tafir verða á málsmeðferð fyrir dómstólum vegna þessa máls. Það er mjög alvarlegt ef niðurstaða Mannréttindadómstólsins verður til frekara tjóns í réttarkerfinu okkar en nauðsyn ber til. Stjórnvöld verða að taka á þessum vanda.