149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Eldri borgarar eru ekki einsleitur hópur. Það eru ólíkar tekjur, félagsaðstæður, menntun, heilsufar, ólík áhugamál — og stór hluti hefur getu og áhuga á að vinna fram yfir sjötugt. Það er, eins og þið vitið, hægt í einkageiranum. Þar kemur þetta frítekjumark við sögu en mætti vera hærra. Opinberi geirinn — sjötugt, þá ertu úti.

Ég ætla að fá að lesa hér upp úr tölvupósti frá ágætum kennara, Sigurði R. Guðjónssyni. Hann segir, með leyfi forseta:

„Ég sný mér til þín í trausti þess að þú endurvekir mál sem kom til umræðu fyrir nokkru á Alþingi um að hækka aldursmörk hjá hinu opinbera þannig að hinn fullfríski starfsmaður ríkisins sé ekki neyddur til að hætta þegar sjötugsaldri er náð.“

Áfram segir hann, með leyfi forseta:

„Sjálfur er ég kennari og geri ekkert skemmtilegra en að hitta nemendur og reyna að koma þeim til nokkurs þroska. Þá tel ég mig vera með nýjungagjarnari starfsmönnum í skóla og ég reyni að nýta mér tæknina þannig að ég tel að samstarfsmenn mínir og nemendur myndu ekki segja að ég væri útbrunninn og hjakkaði í sama farinu.“

Herra forseti. Ég tek almennt undir orð kennarans og hvet til þess að enn einu sinni verði farið í saumana á þessu máli og leiðir fundnar til að eldri borgarar í opinberri þjónustu geti þá valkvætt starfað lengur en til sjötugs með sína dýrmætu þekkingu og reynslu. Í mörgum greinum, í menntakerfinu, í heilbrigðiskerfinu og víðar, eru margir starfsmenn í fullu fjöri og gætu unnið í svo og svo mörg ár en hafa ekki til þess leyfi. Auðvitað kostar þetta ýmsar lagabreytingar, en svo víða er þörf fyrir góða starfskrafta að það ætti að vera hægt.

Ég tel, herra forseti, að nútíminn eigi að fara að gilda í þessum efnum. Svo mikið hefur breyst meðal eldri borgara nú til dags og hægt á að vera að koma þessu í betra horf.