störf þingsins.
Hæstv. forseti. Mig langar að taka upp umræðu um 86. mál sem liggur fyrir umhverfis- og samgöngunefnd, sem er þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Tilefnið er ærið, borgarstjórn Reykjavíkur hefur undanfarin ár og misseri unnið að því leynt og ljóst að þrengja að vellinum. Vellinum hafa verið sett þröng skilyrði. Búið er að loka flugbraut og maður hefur á tilfinningunni, miðað við skipulagsáætlanir, að honum eigi að koma fyrir kattarnef braut fyrir braut.
Um það er ekki deilt að skipulagsvaldið sem slíkt er vissulega hjá sveitarfélögunum en Reykjavíkurborg er öðruvísi sveitarfélag en mörg önnur sveitarfélög. Þetta er höfuðborg Íslands og höfuðborg landsins er eðli sínu samkvæmt með annað hlutverk en önnur sjálfstæð sveitarfélög. Það yrði ekki gerð athugasemd við að Reykjavík réði málum sínum til að mynda í Hljómskálagarðinum eða að Kópavogsbær réði málum sínum á Rútstúni. Þegar kemur að samgöngumannvirkjum sem varða alla landsmenn er málinu einfaldlega öðruvísi háttað.
Á Reykjavíkurflugvelli er fjölþætt starfsemi. Þar er til að mynda innanlandsflugið, hjarta þess, kennsluflug, þekkingarsetur sum sé, útsýnisflug, leiguflug, verkflug, sjúkraflug, Landhelgisgæsla Íslands. Hátæknisjúkrahúsið okkar er í Reykjavík, stjórnsýslan er í Reykjavík og Reykjavíkurflugvöllur er mikilvægur varaflugvöllur fyrir millilandaflugið.
Ástand vallarins og brauta er óásættanlegt í dag. Flughlöð þurfa að stækka og þar mætti þétta byggð, þ.e. sem fyrir er á vellinum.
Ég hvet Alþingi eindregið til þess að taka vel undir þetta mál þegar það kemur inn í þingið með þingsályktunartillögu og setja það í þjóðaratkvæðagreiðslu.