149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Stígamót birtu nýja ársskýrslu sína fyrr í þessari viku. Stígamót eru grasrótarsamtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fólki sem hefur verið beitt slíku ofbeldi. Það er full ástæða til að þakka og hrósa Stígamótum fyrir allt sitt mikla starf í nær þrjá áratugi. Í ársskýrslunni eru teknar saman margvíslegar tölur um kynferðisofbeldi sem eru sláandi og sýna með afgerandi hætti hve útbreitt og alvarlegt ofbeldi af þessu tagi er. Þær tölur sýna okkur þingmönnum að Alþingi og stjórnvöld þurfa að gera enn betur og að enn er langt í land með að nóg sé að gert til að stemma stigu við þessum glæpum og hjálpa þeim sem fyrir ofbeldinu verða sem og þeim sem ofbeldinu beita.

Í skýrslunni kemur fram að af 359 einstaklingum sem beittir höfðu verið ofbeldi voru 311 konur, 47 karlar og einn af öðru kyni. Karlar voru því tæp 96% ofbeldismanna en konur um 4%. Algengast er að ofbeldi sé beitt á heimilum. Heimili ofbeldismannsins er algengasti staðurinn og sá næstalgengasti er sameiginlegt heimili þolenda og gerenda.

Rúm 70% þeirra sem leituðu til Stígamóta í fyrsta skipti í fyrra voru yngri en 18 ára þegar ofbeldið var framið. Þegar aldur ofbeldismanna er skoðaður sést að um 17% ofbeldismanna eru 17 ára eða yngri og eru þar með á barnsaldri. Verkefni Stígamóta „Sjúk ást“ miðar einmitt að því að ná til ungs fólks og fjallar um heilbrigð sambönd, óheilbrigð sambönd og ofbeldisfull sambönd. Markmið þess er að fræða ungmenni um mörk og samþykki með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi. Slagorð átaksins í ár er: „Ég virði mín mörk og þín“. (Forseti hringir.)

Enn og aftur færi ég Stígamótum þakkir fyrir ómetanlegt starf og baráttu.