149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég veit að það er ekki mjög til siðs á hinu háa Alþingi að svonefndir stjórnarandstæðingar og þeir sem sitja í minni hluta hverju sinni séu að hæla mikið ríkisstjórn eða ráðherrum. Ég ætla að brjóta odd af oflæti mínu og gera það núna. Mig langar að hrósa hæstv. félags- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, fyrir vel unnin störf og framlag hans í starfi síðan hann byrjaði.

Þetta gleður mig mjög, en ég sat á þingi á tímabilinu 2013–2016 og var þá einn af talsmönnum barna á Alþingi og lét mig þau mál mjög mikið varða. Mér finnst hann hafa tekið á þeim málum af mikilli festu og það er mjög ánægjulegt að sjá það sem hann hefur verið að gera. Það er hægt að lesa á síðu félagsmálaráðuneytisins um þau störf og það sem hann hefur verið að gera.

Að því sögðu langar mig til að hvetja hæstv. ráðherra til þess að knýja á um og flýta afgreiðslu tillögu til þingsályktunar um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem lögð var fram þann 14. september sl. undir forystu hv. þm. Ágústs Ólafs Ágústssonar. Því fyrr sem sá samningur er lögfestur, því betra. Þetta er einn mikilvægasti samningur sem mannkynið hefur samið.

Eins vil ég hvetja hæstv. ráðherra til að beita sér í málefnum einstæðra feðra. Mig langar í því sambandi að vitna í grein eftir Guðmund Steingrímsson, sem sat hér á þingi fyrir fjöldann allan af flokkum, sem birtist í Fréttablaðinu í vikunni. Þar segir í niðurlagi greinarinnar, með leyfi forseta:

„Í bókum kerfisins eru einstæðir feður eiginlega ekki til. Börnin eru ekki skráð með lögheimilið hjá þeim. Þeir eru því skráðir einstæðingar. Kerfið segir að þeir eigi ekki börn. Þeir eru því ekki studdir.

Í þessum hópi er fátækasta fólk landsins. Fáir hafa það jafn skítt og tekjulágir, eignalitlir feður sem vilja þó allt gera til þess að taka þátt í uppeldi barna sinna. Þeir fá engan stuðning, heldur þvert á móti. Þeir þurfa að borga. Alveg sama þótt verkalýðsforysta blási í herlúðra gegn fátækt og ríkisstjórn hækki stuðning við foreldra, þá skal þessi hópur — feður — grafinn og gleymdur. Viðhorfið er augljóst og merkilega kuldalegt: Þeir mega éta það sem úti frýs.“ (Forseti hringir.)

Þetta bitnar mest á börnunum.