149. löggjafarþing — 92. fundur,  10. apr. 2019.

störf þingsins.

[15:30]
Horfa

Una María Óskarsdóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði að hreyfa við þremur málum en nú bregður svo við að hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson flutti fyrstu ræðuna fyrir mig þannig að ég get bara sleppt henni. Ég ætlaði að segja frá þessu góða bréfi frá kennara sem leggur til að aldursmörk hjá hinu opinbera verði hækkuð þannig að fullfrískir starfsmenn ríkisins séu ekki neyddir til að hætta að vinna þegar sjötugsaldri náð. Ég ætla því að benda á að frumvarp Miðflokksins um þetta mál liggur nú í nefnd og fær vonandi jákvæða afgreiðslu í þinginu. Ég er alveg viss um að svo verður, sérstaklega þar sem stjórnarþingmaður steig hér upp á undan mér til að fjalla um málið.

Annað mál sem ég hafði áhuga á að kynna fyrir þingheimi er athyglisverð aðferð, ný skilnaðarlög í Danmörku, þar sem foreldrar eru skyldaðir til að fara á námskeið fyrir skilnað. Þannig er að um 15.000 pör í Danmörku skilja á ári hverju og aðaldeilumálið eru börnin. Skilnaðir bitna mest á þeim og í nýju lögunum í Danmörku eru þarfir og réttindi barna sett í forgang. Um er að ræða einhvers konar ljósagjöf. Fyrst fara foreldrarnir í ráðgjöf og fá gult ljós ef þeir þurfa einungis ráðgjöf. Ef þeir þurfa frekari aðstoð við meðferð varðandi börnin, þá er um að ræða fjölskyldumeðferð í fjölskylduhúsi. Mér finnst vert að skoða þessa aðferð Dana. Við Íslendingar höfum, eins og allir vita, tekið upp ýmsa löggjöf frá Danmörku.

Þriðja málið, sem ég hef þó lítinn tíma til að tala um, er framræst votlendi. Ég heyrði í landgræðslustjóra tala um að bændur hefðu ræst fram land og stundum án leyfis. Það þarf að fá leyfi til þess hjá sveitarfélögunum ef um er að ræða meira en tvo hektara lands og landgræðslustjóri segir að misbrestur sé á því að sveitarfélög sinni þessu. Ég vil því hvetja til þess að rannsóknir fari fram á því hve miklu máli framræsla lands skiptir varðandi umhverfið.