149. löggjafarþing — 93. fundur,  10. apr. 2019.

almenn hegningarlög o.fl.

796. mál
[21:21]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er hárrétt að þetta skiptir miklu máli og hvað varðar nýsköpunarumhverfið, af því að hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni hvort við gætum gert það auðveldara t.d. að stofna fyrirtæki, er ég viss um að svo sé. Það er einmitt einn liður sem er sérstaklega komið inn á í vinnunni um nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Ég held nefnilega að hér sé tækifæri í umræðu um þessi mál að gera greinarmun á þessu tvennu. Ég held að rammi utan um misnotkun á hlutafélagaforminu þar sem fólk er að svíkja og brjóta lög, almennilegur rammi utan um það, geti einmitt hjálpað okkur við að nálgast viðskiptalífið almennt, frumkvöðla, og hvatt þá til að taka áhættu og stofna fyrirtæki og það sé aldeilis í lagi að mistakast og það sé partur af því að stíga inn á það svið. Ég held einmitt að slíku fólki myndi líða betur ef það væri rammi utan um þá sem augljóslega brjóta lög og misnota hlutafélagaformið og síðan hina sem taka áhættu, stofna fyrirtæki, láta á það reyna að búa til verðmæti og það megi mistakast og þá standi viðkomandi upp aftur og haldi áfram. Hér getur einmitt verið tækifæri til þess.

Svo er ég líka sammála því, og ég hef verið með þetta frumvarp í vinnslu í tæp tvö ár, að það sé betra að taka minni skref en raunhæf og vera þá viss um að við séum á réttri leið, kortleggja næstu skref og fikra okkur með þeim hætti áfram frekar en að taka of stór skref og gera mistökin þannig.