menntun, hæfni og ráðning kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og kynningu á málinu sem hefur verið nokkur í aðdraganda þess að það hefur verið lagt fram hér. Það er tvennt sem mig langar að inna hæstv. ráðherra eftir. Í fyrsta lagi er það ákvæði 19. gr. um að öll eldri leyfi verði sjálfkrafa allsherjarleyfi en samt með tiltekinni sérhæfingu. Hefur verið skoðuð í ráðuneytinu einhver önnur aðferð við þetta? Við vitum að þrátt fyrir að í dag, og kannski undanfarin þó nokkur ár, sé kennaranám tiltölulega líkt eða álíka langt á milli mismunandi skólastiga þá var það ekki alltaf þannig. Kannski má velta fyrir sér hvort einhver sem er með eldra en 20 ára gamalt nám í einhverri af sérhæfingunum sé hreinlega heppilegur aðili til að fá réttindi til að kenna á öllum skólastigum eða hvort hann þurfi hreinlega að öðlast nýja færni eða endurmenntun til að geta tekið að sér að kenna á öðru skólastigi á þeim tímapunkti.
Ég skil frumvarpið svo að sá hæfasti verði alltaf ráðinn og ekki þurfi endilega að ráða viðkomandi einstakling sæki fleiri um, en eins og hæstv. ráðherra er kunnugt um er það oft þannig að ekki eru margir umsækjendur um kennarastöður. Það getur verið erfitt fyrir (Forseti hringir.) skólastjórnendur á tilteknum stöðum (Forseti hringir.) að neita sér um kennara ef hann býðst (Forseti hringir.) jafnvel þótt ekki sé vissa um menntunina.
(Forseti (WÞÞ): Ég bið hv. þingmenn um að virða ræðutíma.)