menntun, hæfni og ráðning kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna um hvort aðrar leiðir hafi verið skoðaðar. Ég vil taka fyrst fram að þetta frumvarp er unnið í mjög víðtæku samstarfi við háskólana, kennaraforystuna og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Viðkomandi skólastjórnandi auglýsir eftir ákveðinni hæfni. Hv. þingmaður kann að hafa tekið eftir því nú þegar við förum yfir frumvarpið að í því er í fyrsta lagi skilgreindur hæfnirammi og hvaða hæfni viðkomandi aðili þarf að bera til að geta kennt á viðkomandi skólastigi.
Ég á mér þann draum að staðan verði þannig í íslenskum skólamálum að mun fleiri sæki um stöður, bæði kennarastöður og skólastjórnendastöður. Liður í þeirri vegferð er að auka sveigjanleika, auka möguleika til starfsþróunar.
Virðulegur forseti. Þegar maður spyr menntamálaráðherra annarra ríkja sem eru talin vera með svokölluð framúrskarandi menntakerfi einblína allir þeir ráðherrar á þá staðreynd að starfsþróun kennara skipti miklu máli, sveigjanleiki kennara og að þeir nái að þróa sig í áttina að því að vera á þeim stað sem þeir vilja. Þetta frumvarp er klárlega liður í þeirri vegferð og ég er sannfærð um að það verði til heilla fyrir íslenskt skólastarf.