149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum.

[10:53]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Fyrir stuttu voru kynntar með pompi og prakt aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins. Um þetta framtak ríkisstjórnarinnar má ýmislegt segja. Í því er auðvitað sumt betra en annað. Það sem slær mig er að engar þær aðgerða sem eru fyrirhugaðar í húsnæðismálum eru raunverulega fallnar til þess að bæta stöðu leigjenda einmitt núna. Ekkert kemur til móts við það fólk sem mest þarf á hjálp að halda þegar kemur að húsnæðismálum, fólk með lágar tekjur sem greiðir stóran hluta tekna sinna beint í húsaleigu. Það eru einhverjar úrbætur á réttarstöðu og einhverjar aðgerðir til lengri tíma en ekkert til að bregðast við þeim mikla vanda sem blasir við mörgum á leigumarkaðnum núna.

Meginþunginn í þessum aðgerðum er á því hvernig hægt er að auðvelda enn fleirum að kaupa sér leið inn á húsnæðismarkaðinn. Það á sem sagt að troða öllum inn í sama módelið þar sem þeir eru neyddir til að skuldbinda fjárhag sinn í marga áratugi til þess eins að eignast öruggt þak yfir höfuðið.

Nú er ein helsta tillagan sú að fundnar verði skynsamlegar leiðir og útfærslur til að auðvelda ungum og tekjulágum fyrstu fasteignakaup. Allt tal um lán með há veðhlutföll og lágar afborganir fyrstu árin hljómar fyrir mér eins og augljósar fátæktargildrur. Hvað með það þegar fólk vill stækka við sig? Hvað ef það kemur verðbólguskot og afborganir hækka eða eiginfjárhlutfall minnkar? Gleymum ekki þeim þúsundum fjölskyldna sem misstu allt eigið fé í húsnæði sínu í verðbólguskotinu eftir hrun. Hvar verður það fólk statt í næstu efnahagskreppu?

Ég óttast að með þessum aðgerðum séum við ekki að losa fólk undan þeirri pressu og þeim áhyggjum sem fylgja veru á íslenskum húsnæðismarkaði, heldur bara að ýta enn frekar undir séreignarstefnu Sjálfstæðisflokksins þar sem leigjendur eru einhver aukastærð sem engu máli skiptir. Það hefur aldrei verið raunhæft að vera leigjandi á Íslandi til lengri tíma. Ætlar hæstv. ráðherra að beita sér fyrir því að sú staðreynd breytist og að hér verði það raunverulegur kostur að vera á leigumarkaði?