149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum.

[10:55]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Staðreyndin er sú að á síðasta ári töldu menn að ekki væri mögulegt að ná kjarasamningum vegna þess að stórátak þyrfti í húsnæðismálum og það yrði að vera stóra atriðið sem gæti brúað bilið milli aðila vinnumarkaðarins. Ríkisstjórnin lagðist þess vegna í mjög viðamikla vinnu með sérstökum átakshópi sem hafði það verkefni að skoða leigumarkaðinn sérstaklega og framboð á húsnæði, framboð lóða.

Þarna inni voru sveitarfélögin, þarna inni voru báðar hliðar vinnumarkaðarins, opinberi og almenni geirinn og Samtök atvinnulífsins. Þessi hópur skilaði 40 tillögum sem kynntar voru í byrjun þessa árs. Allar þær tillögur eru komnar í farveg í dag og þar eru mjög róttækar hugmyndir sem snúa m.a. að áframhaldandi uppbyggingu leigumarkaðarins, varðandi það að styrkja lagalega stöðu leigjenda á markaði, breytingar á húsaleigulögum o.s.frv., en einnig varðandi aukið framboð og stuðning við þá hugsun sem stéttarfélögin hafa lagt fram varðandi uppbyggingu á Blæ, sem er félag sem er fyrir ofan Bjarg, og er ekki ætlað þeim allra tekjulægstu heldur þeim sem þar eru fyrir ofan.

Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar þar miðuðu að því að styrkja stöðu leigjenda og stöðu á leigumarkaði. Síðan kynntum við í framhaldinu tillögur til að aðstoða þá sem ekki vilja vera á leigumarkaði við að komast í eigið húsnæði. Það eru tillögur sem voru kynntar í síðustu viku. Þegar allar þessar tillögur koma saman — þær eru komnar í farveg og Íbúðalánasjóður mun ásamt félagsmálaráðuneytinu fylgja þeim eftir — verður grettistaki lyft í húsnæðismálum. Meira að segja stéttarfélögin hafa lýst því að bylting geti orðið í húsnæðismálum. Ég kannast því ekki við það sem hv. þingmaður bendir á hér, að við séum að skila auðu gagnvart leigjendum. Við erum að veita báðum hópum val, þeim sem vilja vera á séreignarmarkaði og þeim sem vilja vera á leigumarkaði. Þetta er allt komið í góðan farveg og er í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.