149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum.

[10:57]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Ég tek undir að þessar aðgerðir eru margar góðar, en ég hef áhyggjur af því að þær komi ekki nægilega til móts við það fólk sem býr við lágmarkslaun og notar mjög stóran hluta tekna sinna til að greiða fyrir húsnæði og nær kannski ekki endum saman.

Ég hef áhyggjur af leigumarkaðinum. Við gætum gert svo miklu meira til að aðstoða þennan hóp. Gleymum ekki að helsta áhersluefni kjarasamninga var að bæta kjör þeirra sem minnst hafa á milli handanna. Við gætum hækkað húsnæðisbætur og víkkað út hverjir eiga rétt á þeim. Við gætum hækkað barnabætur og hækkað skerðingarmörkin meira. Við getum raunverulega komið til móts við þann hóp sem þarf á aðstoð að halda, en það verður þá að vera sérstakt markmið með aðgerðunum, sem mér sýnist ekki vera, því miður.

Ég hef áhyggjur af því hvaða áhrif þessar aðgerðir í húsnæðismálum muni hafa á leigumarkaðinn. Þegar við leggjum ofuráherslu á að allir eigi að geta keypt eigið húsnæði, nema kannski þeir sem allra minnst hafa á milli handanna, velti ég fyrir mér og spyr hæstv. ráðherra: Mun þetta auka eftirspurn og þrengja leigumarkaðinn? Hefur það eitthvað verið skoðað (Forseti hringir.) hvaða áhrif þessar aðgerðir munu hafa á leigumarkaði? Var það eitthvað skoðað sérstaklega hvaða áhrif núverandi aðgerðir í húsnæðismálum myndu hafa á leigumarkaðinn?