149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum.

[10:58]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, aðgerðir okkar eiga að miða sérstaklega að lægsta tekjuhópnum. Það er þess vegna sem stærstur hluti af þeim pakka sem ríkisstjórnin lagði fram, ekki bara í húsnæðismálum heldur líka varðandi hækkun barnabóta og hækkun skerðingarmarka, miðar að lægsta tekjuhópnum. Það er þess vegna sem stéttarfélögin í landinu, sem gerðu kjarasamninga hér, voru sammála um að pakki ríkisstjórnarinnar hefði skipt sköpum í því að brúa það bil sem þurfti að brúa á milli Samtaka atvinnulífsins og stéttarfélaganna. Það sem við erum að gera með þeim tillögum sem kynntar voru í átakshópnum og lúta að verulegu leyti að leigumarkaðnum er að styrkja stöðu fólks þar, halda áfram uppbyggingu almenna íbúðakerfisins, setja fjármagn inn í það, fjölga íbúðum. Þær tillögur eru miðaðar að tekjulægsta hópnum og því segi ég við hv. þingmann að ég held að hún sé ein um að meta tillögur ríkisstjórnarinnar þannig að þær komi sér ekki best fyrir tekjulægstu hópana. Stéttarfélögin (Forseti hringir.) eru algjörlega sammála ríkisstjórninni um að þetta séu mjög góðar tillögur og miði fyrst og síðast að tekjulægstu hópum íslensks samfélags. (HallM: Ég er að tala um leigumarkaðinn …)