149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.

[11:05]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Ég þakka svarið. Mig langar líka til að minna á, og það er vont að þurfa að minna á það, að hér í þessum sal samþykkti Alþingi aukafjárveitingu til nákvæmlega þessara stofnana, innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, upp á 276 milljónir um síðustu áramót. Þessir peningar hafa ekki skilað sér og svar Sjúkratrygginga við fyrirspurn þar að lútandi er: Samningarnir eru ekki til.

Það gengur ekki.

Mig langar til þess í seinni umferð rétt að nefna að þó að Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu séu undir núna er staðreyndin sú samkvæmt svari heilbrigðisyfirvalda við fyrirspurn minni sl. sumar að starfað var eftir 12 samningum sem voru útrunnir, og á síðasta ári og á þessu ári renna út 34 samningar. Það er því ærið verkefni fram undan.

Ég velti fyrir mér þessum fjölda samninga, stórra sem smárra, sem er í uppnámi og þar með rekstur sjálfseignarfélaga, að rekstur sjálfstætt starfandi sérfræðinga, rekstur stofnana og ekki síst öryggi þjónustuþega, (Forseti hringir.) sjúklinga og annarra: Er þetta allt undir einhvers konar heildarendurskoðun heilbrigðisyfirvalda á starfsemi Sjúkratrygginga?

Ég vek jafnframt athygli á því að á þingmálaskrá ríkisstjórnar (Forseti hringir.) fyrir veturinn voru lög um samninga Sjúkratrygginga. Það hefur verið kallað aftur. (Forseti hringir.) Er þetta allt hluti af einhverju stóraplani og munu allir (Forseti hringir.) þessir samningar bíða eftir því að svarið finnist hjá heilbrigðisráðherra?

(Forseti (SJS): Forseti biður menn að gæta að tímamörkum.)