149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

lyf við taugahrörnunarsjúkdómi.

[11:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og kemur fram í síðari spurningu hv. þingmanns er hann að tala um lyf sem eru þeirrar gerðar að þau séu ekki fullrannsökuð en vilji tiltekinna hópa eða einstaklinga standi til þess að fái að njóta vafans, ef svo má að orði komast — og það er býsna stórt skref að stíga.

Ég held að það væri til gagns að leggja fram skriflega fyrirspurn um þetta vegna þess að þetta varðar ákveðna grundvallarhugsun í því hvernig við tökum inn ný lyf. Við höfum ekki verið þeirrar skoðanir á Íslandi að réttlætanlegt væri að ný lyf væru tekin inn án þess að þau væru fullrannsökuð, því að þar með værum við mögulega að taka áhættu hvað varðar heilsu einstaklinga, vegna hættu á aukaverkunum og ýmsu slíku sem ekki lægi fyrir þar sem rannsóknir væru ekki fullnægjandi. Þetta eru stórar spurningar, siðferðislegar og samfélagslegar.

Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þessa umræðu upp hér, þetta er ein af þeim stóru spurningum sem við þurfum að fjalla um á þessum vettvangi.