viðauki við samninginn um réttindi fatlaðs fólks.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að eiga við mig orðastað í dag. Það málefni sem mig langar til að inna ráðherra eftir varðar samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þá kannski sérstaklega um valfrjálsa viðaukann sem þeim samningi fylgir. Eins og hæstv. forsætisráðherra er kunnugt var samningurinn sjálfur fullgiltur af Íslands hálfu í september 2016. Þegar sú þingsályktunartillaga utanríkisráðherra var lögð fram til samþykktar lagði sá sem hér stendur fram breytingartillögu þess efnis að valfrjálsi viðauki samningsins yrði líka fullgiltur. Er skemmst frá því að segja að uppi varð fótur og fit í þinginu og eftir nokkurt þóf hér í hliðarsölum varð niðurstaðan sú að leggja fram breytingartillögu sem sagði að Alþingi ályktaði að valkvæður viðauki við samninginn skyldi einnig fullgiltur fyrir árslok 2017 og var hún samþykkt einróma. Valkvæði viðaukinn mælir fyrir um kæruleiðir fyrir einstaklinga og hópa sem telja að íslensk stjórnvöld hafi ekki veitt þeim þann rétt sem þeim ber samkvæmt samningnum og hafa árangurslaust nýtt þau úrræði sem þeir hafa samkvæmt íslenskum lögum og stjórn- og dómskerfi til að ná því fram sem þeir telja sig eiga rétt á samkvæmt samningnum. Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna með samningnum getur óskað upplýsinga frá ríkjum og beint tilmælum til þeirra standi þau ekki við sitt. Með því að fullgilda valkvæða viðaukann verður virkara aðhald með ríkjum um að framfylgja samningnum, réttaröryggi fatlaðs fólk meira og mannréttindi þess betur varin og finnst mörgum ekki veita af.
Hæstv. forseti. Nú er kominn apríl árið 2019 og enn hefur þessi valkvæði mikilvægi viðauki ekki verið fullgiltur. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra hver sé afstaða hennar til þessa valfrjálsa viðauka og framgangs málsins, ekki síst í ljósi ótrúlegs svars fyrrverandi dómsmálaráðherra við fyrirspurn um málið hér í þinghúsinu mánudaginn 18. febrúar sl. sem borin var fram af hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.